Vera


Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 19

Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 19
FORSETAFRAMBJÓÐENDUR OG AFNÁM KYNJAMISRÉTTIS í i Flestum ber saman um að forseti eigi að vera málsvari mannréttinda. Þjóð- félagsþegnar sem beittir eru misrétti vegna litarháttar, trúarbragða, upp- runa eða þess háttar njóta ekki fullra mannréttinda. Sama gildir um mismun- un á grundvelli kynferðis, enda var samþykkt á kvennaráðstefnu Samein- uðu þjóðanna í Kína sl. haust að kven- réttindi væru mannréttindi. Hvernig munt þú styðja baráttu ís- lenskra kvenna fyrir afnámi kynjamis- réttis, náir þú kjöri? Mismunun vegna kynferðis fer í bága við þann grundvallarrétt einstakra manna, að þeir njóti jafnræðis á við aðra gagnvart lögum og leikregl- um samfélagsins. Kynjamisrétti felur þannig í sér brot á þeim mannréttindum, sem sérhver einstaklingur á tilkall til. Jafnrétti kynjanna snertir allt daglegt líf fólks. Það ræður úrslitum um þau uppvaxtar- skilyrði, sem við sköpum ungu fólki til framtíð- ar, hvernig við tökum á jafnréttismálum í dag. Jafnrétti kynjanna er alls ekki flokkspólitískt mál. Það er vissulega eitt af þeim málefnum, sem forseti íslands hlýtur að láta sig varða, kynna sjónarmið sín og viðhorf og færa fyrir þeim rök. Forseti íslands hefur ekki pólitísk völd en embætti hans fylgja áhrif af margvíslegu tagi. Forsetinn á aö beita áhrifamætti sínum til þess að knýja á um virðingu fyrir mannhelgi og þeim rétti, sem frjálsir menn eru bornirtil. Það getur hann gert í ræðu eða riti og með samskiptum við það fólk, sem á hlut að rnáli. Það mun ég gera með fullum þunga, verði ég kjörinn forseti íslands. ► ffijá ohluii'Jimlj)ú 7. hoeiy'a hlijjimjujmu t )ama oera ú /atHjurdöyu/n, t/ti/ift/un« //tu/nti.st/öffö^ f/Cu/vi/tenu/neisiuni //(únt/neid.s'/tt/neisfuni - fifa/neisiani ())( * t/isAan • /. .»'«■/✓ fiemitmc/i/- otj OfaAefifi ona Leirubakka 36 * 557 2053 Opið 9-18 virka daga, 10-14 laugardaga (lokað á laugardöguin á sumrin) forstakosningarnar

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.