Vera - 01.06.1996, Síða 3
d a
andrésdóttir
vorum
við töff!
Vinkona mín sagði við migí símanum um daginn; „þær eru svo töff þessar ungu stelþ-
ur í dag, við vorum ekki svona töff - var það?" Mér vatðist nú aðeins tunga um tönn,
því okkur hefur stundum fundist við verða mildari og meyrari með aldrinum. Ég held
reyndar að það sé margslungnara og skrifa þá eiginleika einkum á reikning aukins
þroska og víðsýni. En þegar ég hafði velt þessu aðeins fyrir mér í símanum þennan
maímorgun og litið hratt um öxl komst ég að niðurstöðu. Jú, við vorum einmitt svona
töff, ef ekki meira.
Því það var eitt sinn annar maímorgunn fyrir 30 árum eða svo að viö vorum tvær
stelpur í íslenskri sumarparadís að láta hjartans draum okkar rætast þvert á nkjandi
tíðaranda og hefðir. Við stofnuðum okkar eigið fótboltalið. Hóuðum saman nokkrum
strákum sem brutu odd af oflæti sínu og einni stelpu, því fleirum var víst ekki til að
dreifa. Ég er ekki einu sinni viss um að byltingin hafi náð svo langt að einungis stelþur
gætu skipað eitt stykki fótboltalið á þessum tíma. En drottinn minn, hvað þetta var stórt
skref. Við höfðum lifað og hrærstí fótbolta. í draumi skipuðum viö allar stöður, skoruð-
um mörkin og unnum til verðlauna. í vöku vorum við fastir vallargestir, áhangendur, að-
dáendur og æptum okkur hásar - utan vallar. Þangað og ekki lengra. í þá daga voru
strákamir í fótbolta en stelpumar ekki. Svo einfalt var það. Við stálumst stundum inn
á stóran malarvöllinn í bænum og sþörkuðum þar til einhver rak okkur burt og ég man
við deildum fótboltaáhuganum með fullorðinni konu í næsta húsi. En við vorum kyn-
slóðum yngri og stigum skrefið. í legghlífum ogtakkaskóm börðum við liðsmenn okkar
til æfinga þrisvar til flórum sinnum í viku, því við stefndum hátt. Við vildum giaman
keppa við aðra bæi og kauptún í landinu, en við náðum víst ekki lengra en að keppa
við annað hverfislið og ég þori ekki að fara með það hvort liðið bar sigur úr býtum. Alla-
vega eigum við enga bikara, engar medalíur og ekki einu sinni hóþmynd af Kirkjubæj-
arliðinu, - það var sum sé heiti liðsins ef þið skylduð kannast við það...
í dag fylgist ég með íslenskum stelþum á skjánum í alvöru fótbolta á alvöru völlum
og fyllist stolti fyrir þeirra hönd og ekki síður okkar sem þama fyrir 30 árum eða svo stig-
um skrefið og það, mín kæra vinkona í sTmanum, var bara asskoti töff!
Ég á mynd frá öðmm maímorgni í fómm mínum af sjö konum, allar íslenskar utan
ein amerísk og allar flugkonur. Myndin var tekin í dulitlu samsæti í tilefni af komu þeirr-
ar útlendu. Ég er með fyrsta drenginn minn í maganum á þessari mynd og það mark-
aöi reyndar endalokin á flugferlinum; sólópróf að baki, 50 flugtímar og ég farin að
sveima ein T rellu yfir Reykjavík og nágrenni. Ég horfi á myndina og velti fyrir mér hvað
oröið hafi af þessum kynsystmm mínum sem vom með þeim fyrstu að storma inn í eitt
harðgeröasta vigi íslenskra karlmanna á þeim tíma, flugmannaveröldina. Og það, mín
ágæta vinkona í símanum aftur, var líka asskoti töff!
Ég var ansi lukkuleg þegar fyrsta Tslenska konan varö flugstjóri hjá Flugleiðum fyrir
skömmu. Hún var ekki ein I hóþi þessara fyrir röskum tuttugu ámm, enda yngri, en mér
kom svona í hug - heföi maður haldið áfram - þá segði ég ekki í vinnu minni T dag; „Gott
kvöld, í fréttum er þetta helst..." heldur „Góðir farþegar, þetta er flugstjórinn sem taf
ar...“!!!
Og þar sem ég man eitt og annað til viðbótar þessu er niðurstaða mín sú aö víst
vomm við töff. Ég held að konur séu almennt töff, að minnsta kosti inn við beinið og af
því að konur okkar kynslóðar vom töff em ungu stelpumar í dag það einmitt líka. Og ef
þér vinkona finnst við hafa meiri mildi eða mýkt til aö bera, þá er það ekki vegna þess
að viö séum ekki nógu harðar í hom að taka ef því er að skiþta — ég vil heldur segja
að viö þroskuðumst úr sex strengja í tólf strengja...
fastir liðir
Leiðari 2
Pistill 3
Athafnakonan 4
Frumkvöðullinn 7
Skyndimyndin 9
Álitamál 10-11
Prufukeyrslan 44
Úr síðu Adams 46
þema
Forsetakosningar 14-19
viðtöl
Vigdís Finnbogadóttir 20
Fremstafellssystur 24
Þóra Árnadóttir 26
kvennapólitíkin
Kamilla Rún Jóhannsdóttir 38
greinar
Nú andar suðrið 23
í vinnunni 30-34
Loðnir leggir 36
Kvennabanki 47
leiklist
Jötunn 43
list
Schumania 40
bækur
Saga Hvítabandsins 42
fnisyfirlit