Vera - 01.06.1996, Síða 14
forstakosningarnar
FORSETAFRAMBJÓÐENDUR OG AFNÁM KYNJAMISRÉTTIS
íslenska þjóðin hefur nú búiö
við þau forréttindi undanfarin
sextán ár að forseti landsins
er kona og meira að segja
fyrsta konan í heiminum sem
kjörin er til forsetaembættis.
VERA kannar nú kvennapóli-
tíska hlið forsetaframbjóðend-
anna fimm með eftirfarandi
spurningu:
Flestum ber saman um að forseti eigi
að vera málsvari mannréttinda. Þjóð-
félagsþegnar sem beittir eru misrétti
vegna litarháttar, trúarbragða, upp-
runa eða þess háttar njóta ekki fullra
mannréttinda. Sama gildir um mismun-
un á grundvelli kynferðis, enda var
samþykkt á kvennaráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna í Kína sl. haust að kven-
réttindi væru mannréttindi.
Hvernig munt þú styðja baráttu ís-
lenskra kvenna fyrir afnámi kynjamis-
réttis, náir þú kjöri?
Eins og kemur skýrt fram í stofnsáttmála
Friöar 2000 berjast samtökin fyrir jöfnum
mannréttindum allra jarðarbúa. Viö sjáum
slíkt jafnrétti sem framtíðargrundvöll fyrir
friösamlegu mannlífi á jöröinni. Ef ég næöi
kjöri sem forseti íslenska lýöveldisins
myndi ég í hvívetna stuöla aö því með áhrif-
um mínum aö konur sitji viö sama borð og
karlar hvað varöar atvinnutækifæri og
launastefnu og myndi fara höröum oröum
um allan tvískinnungshátt í framkvæmd
jafnréttislaganna.
Einnig vil ég beita áhrifum mínum vegna
þess misréttis sem kvenfólk er beitt vTöa
um heim. Þar má t.d. vekja athygli á túlkun
á kenningum Múhameðstrúar um stööu
kvenna, en nútíma túlkun trúarinnar viröist
T litlu samræmi viö þær kenningar sþá-
mannsins aö konur ættu að taka þátt í hin-
um ýmsu þjóöfélagsmálum á jafnan hátt og
karlar. SITk mistúlkun á mannréttindum
grefur á margan hátt undan því aö mannkyn
geti búið viö friö og farsæld. Mál Sofiu Han-
sen hefur gefiö okkur vísbendingu um þaö
misrétti sem konur búa viö víöa um heim-
inn.
Aldrei hefur verið meira um striö og
hörmungar af mannavöldum en á sTðustu
árum. Aðeins á síöasta ári bættust 5 milljón
börn við heimilislausa flóttamenn sem eru
nú meira en 53 milljónir manns. 40.000
börn látast af vannæringu daglega meðan
þjóðir heims eyða 144 milljörðum króna í
voþn og hernaö hvern einasta dag ársins.
Um milljarður er talinn búa viö sára örbirgö
og þar af eru 600 milljónir manns sem
svelta. Heiminum er meira og minna stjórn-
að af karlrembu sem á engan rétt á sér.
Embætti forseta íslands hefur löngum ver-
iö túlkað sem sameiningartákn þjóöarinn-
ar. Hinsvegar mun slíkt sameiningartákn
koma aö litlu gagni ef samfélag mannkyns
T heild riölast undan fótum okkar. Viö þurf-
um sameingartákn alls mannkyns, og þetta
gæti forseti íslands orðið ef við stöndum
saman á þessum örlagatímum. Tökum for-
ystuna og Virkjum Bessastaði í því að koma
á friði og farsæld í heiminum öllum.