Vera - 01.06.1996, Side 15
FORSETAFRAMBJÓÐENDUR OG AFNÁM KYNJAMISRÉTTIS
%
%
Flestum ber saman um að forseti eigi
að vera málsvari mannréttinda. Þjóö-
félagsþegnar sem beittir eru misrétti
vegna litarháttar, trúarbragða, upp-
runa eða þess háttar njóta ekki fullra
mannréttinda. Sama gildir um mismun-
un á grundvelli kynferðis, enda var
samþykkt á kvennaráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna í Kína sl. haust að kven-
réttindi væru mannréttindi.
Hvernig munt þú styðja baráttu ís-
lenskra kvenna fyrir afnámi kynjamis-
réttis, náir þú kjöri?
i
»
Réttindabarátta kvenna er mikilvægur hluti
mannréttindabaráttu um víða veröld. í slíkri
baráttu hafa margar leiðir verið reyndar og
hafa gefist misvel. íslenskar konur hafa farið
bæði hefðbundnar og ótroðnar slóðir í baráttu
sinni fyrir bættum hag á þessari öld. Þó að
vissulega hafi mikið áunnist á ýmsum sviðum
er þó enn langt T land til að fullu jafnrétti
kynjanna sé náð.
Ég tel að forseti íslands eigi að vera
málsvari mannréttinda í sem víðustum
skilningi þess orðs, bæði heima og heiman.
Þess vegna verður forseti að styðja réttinda-
baráttu allra þjóðfélagsþegna og-hópa, þar á
meðal kvenna. Þetta getur forseti gert bæði í
ræðu og riti og með nærveru sinni og
þátttöku í fundum og ráðstefnum sem fjalla
um slík málefni. Forseti getur m.a. veitt
jákvætt aðhald með því að vekja athygli á
þeim alþjóðasamþykktum sem íslendingar
eiga aðild að og varða réttindi kvenna.
Mikilvægt er að forseti sé jafnréttis-
sinnaður í viðhorfum sínum og málflutningi
og gangi á undan með góðu fordæmi og
hvatningu. í baráttunni fyrir afnámi kynjamis-
réttis er glímt við aldagamlar hefðir og
viöhorf. Áfangasigrar vinnast þar helst með
því að breyta hugsun fólks og hugarfari.
Forseti hefur áhrifavald og getur beitt sér í
þágu jákvæðra hugmynda og þannig haft
áhrif á þróun mála. Hlustað er á orð forseta.
Forseti getur sýnt frumkvæði með því að vera
málshefjandi í umræðum um jafnréttismál og
getur kallað saman til átaks um ákveðin
málefni á því sviði. Forseti getur einnig lagst
á sveif með þeim sem vinna að slíkum
málum. Forseti sem er vakandi fyrir þessum
mikilvæga hluta mannréttindabaráttunnar
getur þannig reynst drjúgur liðsauki í baráttunni
fyrir afnámi kynjamisréttis. Með öllum þessum
ráðum og fleirum mundi ég vilja styðja
heilshugar réttindabaráttu tslenskra kvenna.
forstakosningamar