Vera


Vera - 01.06.1996, Qupperneq 21

Vera - 01.06.1996, Qupperneq 21
Vigdís mætti í viðtalið glæsileg að vanda og þrátt fyrir erilsaman morgun og að hennar biði kvöldverðarmóttaka þá gaf hún okkur allan þann tíma sem við þurftum. Ég byrja á að spyrja Vigdísi hvort henni finnist staða kvenna hafa breyst á þvi sext- án ára tímabili sem hún hefur gegnt emb- ætti forseta íslands - og hvað henni finnist um stöðu kvenna nú. „Það er enginn vafi á því að staða kvenna hefur mikið breyst á síðastliðnum sextán árum, sem sést á því að 1979 voru einung- is 5% konur á alþingi en í dag eru þær 25,4%, þingmanna (þ.e. 16 konur af 63 þingmönnum, auk þess sem 14 konur hafa tekið sæti á þingi sem varamenn á þessu kjörtímabili) sem segir býsna mikið. í stjórn- málaflokkunum hefur sú breyting átt sér stað að þeir eru orðnir sér mjög meövitaðir um það að konur verði að vera í stjórnmál- unum. Hitt er svo annað mál að til að full- komnu lýðræði sé náð eru þær ekki nógu margar fyrr en þær verða jafnmargar körlun- um, því konur eru helmingurinn af þjóöfélag- inu. Það er ekki hægt að tala um lýðræði nema að þessi helmingur, konur, fái að taka þátt í ákvörðununum eða eigi að minnsta kosti hlut T ákvörðununum. Það sem hefur breyst er að konur hafa öðlast sjálfstraust, þær hafa öðlast meiri metnað en þær höfðu áður og um leið varð blæbrigðabreyting á þjóðfélaginu." Allir karlar eru í hjarta sínu kvenréttindamenn „Ef við lítum til ársins 1950 - þegar ég var ung stúlka, þá þótti það sjálfsagöur hlutur að konan væri svona heldurí bakgrunninum en ekki úti á hinum víða velli. Það hét meira að segja í mínu ungdæmi „sú er nú ekki að biðjast afsökunar á sjálfri sér" - konur þóttu framhleypnar ef þær voru mjög að halda skoðunum sínum á loft. Það var gert grin að kvenréttindakonum, það var hermt eftir þeim í revíum, þær gerðar skrækróma og að mörgu leyti gerðar að aðhlátursefni. Það voru karlar sem sömdu revíurnar og þeir skynjuðu vel hvað fólki þótti fyndið. Ætli þeim ásamt mörgum öðrum hafi ekki þótt konurnar vera farnar að „rugga þátnum" of mikið og það þótti ekki við hæfi. Svona var þetta ekki bara hjá okkur, þetta var svona í öllum löndum eins og okkur er fullljóst. Það er ekkert svo langt síöan að kvenréttinda- konur þóttu skrýtnir fuglar, en nú gerir eng- inn gys að kvenréttindabaráttunni - þvert á móti bera nú allir virðingu fyrir henni og það er af því að konum hefurtekist að sanna sig á opinberum vettvangi. Það dettur engum í hug lengur að halda því fram að konur hafi ekki sama vit og karlar og séu jafnhæfileik- arikar og þeir. Allir karlar eru í hjarta sínu kvenréttindamenn vegna þess að þeir eiga allir mæður sem þeir bera virðingu fyrir og margir hverjir dætur og þeir vilja veg þeirra sem mestan" Vigdís segist gera sér grein fyrir því að auðvitað hafi hún, kjör hennar og starf haft áhrif á konurT landinu og sjálfstraust þeirra. Hún telur að á sínum tíma hefði hún fengið fleiri atkvæði ef að konur hefðu verið farnar að treysta öðrum konum. „Það voru svo margar konur sem treystu mér og það var svo dásamlegt - fullorðnar konur og náttúrulega ungar konur en það voru líka margar konur sem virtust ekki þora að treysta því að kona gæti haldið almenni- lega ein utan um starf eins og starf forseta íslands. Ég held að ástæðan fyrir því að þær treystu ekki konu hafi verið sú að þær voru ekki fyllilega búnar að gera upp við sig að konur gætu axlað þjóöfélagsábyrgð sem all- ar götur hafði verið falin körlum. Margar kon- ur hafa komið til mTn og sagt að þær hafi ekki stutt mig í byrjun, en alla tTð síðan og fyrir það er ég mjög þakklát. Það hvarflar ekki að nokkrum lengur hvorki hér á landi, né í þeim löndum sem eru ekki með for- dóma að leiðarljósi, að kona geti ekki gegnt stöðu forseta. Ég álít það ávinning og er hreykin af því að við íslendingar skildum bera gæfu til að vera fyrstir til að sanna það." Því ekki kona! „í sextán ár er ég búin að vinna að því að gera mitt þesta og gefa konum styrk. Um- ræðan um það að nú sé kominn ttmi til að fá karlmann í embættið fer fyrir brjóstið á mér. Sumir halda að þetta sé eitthvert hól um mig og að kona eigi ekki að fara í mín spor-en mérfinnst umræðan lúta að því að koma þessu öllu aftur á byrjunarreit. Ef við lítum til fimmtíu og tveggja ára lýðveldis og drögum frá sextán ár þá fáum við þrjátíu og sex ár. í sextán ár hefur kona gegnt embætt- inu en karlar hins vegar T þrjátíu og sex ár. Er það ekki undarlegt að nokkrum skuli detta slíkt fjarstæðuhjal í hug að kona geti ekki tekið við starfi af konu?" Þetta er allt að koma stelpur! „Mér finnst mikið bakslag í kvennabarátt- unni - það hefur þó nokkuð mikið áunnist, þetta þokast og þetta er nú allt að koma stelpur eins og sagt var T Saumastofunni hans Kjartans Ragnarssonar og er ein spaugilegasta setning sem sögð hefur veriö um það að sætta sig við að allt sé eins og það á að vera. Við höfum lengi vel upplifað þessa uppsveiflu og okkur fannst þetta alltaf hreint vera að koma - og víst er þetta að koma en það er hægagangur á því og við erum öll svo óþreyjufull og nú tel ég karla með, því þeir eru svo margir sem vilja það sama og við. Við viljum því láta þessi mál ganga hraðar og okkur fannst þessi mál vera komin á nokkurt skrið en nú verðum við vitni að því að þau eru t stöðnun. Stöðnunin er alls staðar I þessum málum og er að vissu leyti afleiðing atvinnuleysis. Hvar sem að bólar á atvinnuleysi eru konur alltaf send- ar fyrstar heim og þá kemur bakslag í mál- efni kvenna. Það er bakslag í þessu ITka af því að okkur konum hefur ekki tekist að þoka áfram launamálum. í lögunum er jafn- rétti T orði - en það hefur ekki tekist að skapa það T raun. Sá hugsunarháttur er enn rikjandi í okkar þjóðfélagi, þrátt fyrir jafnrétt- islög og jafnréttisráð, að frekar þeri að veita körlum stöðuhækkun en konum. Það er orð- ið erfitt að taka karla fram fyrir konur T stöðu- veitingum, nema auðvitað T einkafyrirtækjum, en þetta óréttlæti birtist oft T formi stöðu- hækkana og það er erfitt að taka á því þar." Konur eru meiri friðarsinnar Vigdís er nýkomin af þingi kvenkyns þjóðar- leiðtoga - International Women’s Leaders- hip Forum, sem haldið var í Stokkhólmi, og þar sem hún var í forsæti. Hún segir að svona þing geri mikið gagn: „Þarna hittumst við þessar konur sem höfum haft þessa ábyrgð þó að ég hafi ekki pólitísk völd þá ber ég mikla ábyrgð. Við komum frá svo ólíkum löndum og ég sem er búin að vera svona lengi og var brautryðjandi á sínum tTma - ég vigdís f nnbogadóttir

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.