Vera - 01.06.1996, Page 25
Helga er framkvæmdakona og
hefur setið I ýmsum nefndum og
ráðum og verið öflug í kvenfélags-
starfi. Hún lærði að lesa nótur T
æsku og þegar hún flutti T Silfra
staði gerðist hún organisti við kirkj-
una á staðnum. Sjálf segir hún að
það hafi verið útúr neyð en undarr-
farin ár hefur hún verið að læra á
píanó og tók fjórða stig um sjötugt.
Síðustu ár hefur Helga hneigst
æ meirtil andlegra mála og veltir
því töluvert fyrir sér sem við tekur
að þessu lífi loknu. Hún erí Sálar-
rannsóknafélaginu og hefur
einniggert eitthvað af því að heila
fólk með því að leggia yfir það
hendur. Sjálf vill hún sem minnst
úr þeim hæfileikum gera en grein-
arhöfundur kom eitt sinn við hjá
henni í Skagafirðinum eftir að
hafa ekið lengi dags og var Helga
fljót að reka hálsríginn burt.
Alsælar með ferðina
Friðrika var ekki sem best T fótun-
um þegar þær lögðu af stað T
ferðina sína enda er búið að
skera upp á henni aðra mjöðmina
og bæði hnén en meö því að þær
fengu lánaða hjólastóla í flug-
höfnunum urðu gangamir ekkert
vandamál. Þegar uppí flugvélina
kom pöntuðu þær koníak til að
skála fyrir sjálfum sér. Það var
ekki laust við að flugfreyjurnar
yrðu hissa enda örugglega ekki á
hverjum degi sem svona sam-
settur hópur fer til útlanda.
í Danmörku fóru þær yfirleitt
allra sinna ferða þrjár saman og
auðvitað lentu þær í ýmsum
ævintýrum og jafnvel hrakföll-
um einsog gengur og gerist í út-
löndum. Allt fór þó vel og þær
eru alsælar með ferðina. Þegar
þær eru beðnar um að nefna
minnisstæðustu augnablikin
eiga þær bágt með að svara en
þó nefndi Helga ekta danskt
súkkulaði og bakkelsi sem þær
fengu sér í Ebeltoft og ferðina í
Glyptotekið (höggmyndasafn
Carlsberg-bruggverksmiðjanna) í
Kaupmannahöfn. „Mér fannst
eitt andartak sem búið væri að
skjóta mértil himnaríkis," sagði
hún um það sem hún sá þar.
„Við mælum eindregið með
þvT að allar gamlar systur sem
geta á annað borð feröast skelli
sér saman til útlanda," segja
þær brosandi en þær eru helst
að hugsa um að drífa sig fljót-
lega aftur af stað.
Áslaug Thorlacius yngri.
a
G RAFIK
Prentsmiðjan Grafík hf. Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogi ■ Sími 554 5000 ■ Fax 554 BB81
áf raldsfæti