Vera - 01.02.2000, Side 28
o Q9
Fyrstar og fremstar
Hinir forngrísku ólympíuleikar voru
eingöngu ætlaðir karlmönnum og
fengu konur þar hvergi að koma
nærri. Þátttaka kvenna í íþróttum
samrýmdist ekki hugsunarhætti þeirra
tíma. Þá fengu konur heldur ekki að
vera á meðal áhorfenda að leikunum,
en það mun fyrst og fremst hafa helg-
ast af því að í flestum íþróttagreinun-
um voru keppendurnir alls naktir og
því var nærvera kvenna engan veginn
við hæfi. Sagan segir þó að í eitt skipti
hafi kona ein verið gripin svo sterkri
löngun til að horfa á son sinn keppa
að hún dulbjóst sem karlmaður og
komst þannig inn á áhorfendasvæðið.
Um síðir komst þó upp um hana og
virtist hennar þá bíða grimmileg refs-
ing. Á seinustu stundu hlaut hún þó
náðun í Ijósi þess að sonur hennar
hafði orðið ólympíumeistari. Þetta
mun hins vegar hafa verið fyrsta
konan á meðal áhorfenda í gjörvallri
sögu ólympíuleikanna.
Nútíminn - upphafið
Fyrstu ólympíuleikar nútímans fóru fram í Aþenu
árið 1896 að frumkvæði franska barónsins Pierre
de Coubertin. Hann vildi feta sem mest í fótspor
hinna fornu Grikkja og því voru engar konur
meðal keppenda á þessum fyrstu leikum. Þó gekk
hann ekki svo langt að banna þeim aðgang að
áhorfendasvæðum enda gengu keppendur ekki
lengur naktir til leiks. En strax á næstu leikum,
fjórum árum síðar, varð Coubertin að gefa ögn
eftir og heimila konum þátttöku í tveimur grein-
um. Þar með var stíflan líka brostin og æ síðan
hafa konur verið í stöðugri framsókn á hinu ólym-
píska sviði. Mikil þáttaskil urðu á leikunum í
Stokkhólmi 1912 en þá kepptu konur í fyrsta sinn
í sundi. Þótti mörgum það jaðra við siðleysi er
sundkonurnar komu fram I þunnum og aðskorn-
— Hvenær tóku konur fyrst þátt
um sundbolum. Enn eitt stórt skref var stigið á
leikunum í Amsterdam 1928 er konur hófu
keppni í frjálsíþróttum, en sú grein íþrótta skipar
ávallt öndvegissess á öllum ólympíuleikum. Þátt-
tökugreinum kvenna hefur síðan fjölgað jafnt og
þétt og þykir keppni þeirra nú orðið vera sjálfsagt
mál í nánast öllum greinum, með örfáum undan-
tekningum þó, svo sem í hnefaleikum og fjöl-
bragðaglímu.
París 1900
Á Parísarleikunum árið 1900 gengu konur í fyrsta
sinn til leiks á hinu ólympíska sviði. Þó voru aðeins
11 konur í hópi hinna 1077 keppenda og ein-
skorðaðist þátttaka þeirra við tvær greinar, tennis
og golf, en báðar þær greinar voru vinsæl afþrey-
ing á meðal hefðarkvenna. Tenniskeppnin fór
fram á undan og því var það þar sem fyrsti kven-
kyns ólympíumeistarinn leit
dagsins Ijós.
Á þessum tíma þóttu Eng-
lendingar skara nokkuð framúr í
tennisíþróttinni. í karlaflokki
fóru fremstir tveir bræður, Reg-
inald Frank og Hugh Lawrence
Doherty að nafni. Það fór líka
svo að yngri bróðirinn, Hugh
Lawrence, sigraði í einliða-
keppninni en saman unnu þeir
bræður tvíliðaleikinn. I kvenna-
keppninni settu Englendingarnir
traust sitt á ungfrú Charlotte
Cooper, sem þá var komin fast
að þrítugu. Hún átti þá glæstan feril að baki og
hafði m.a. þrívegis unnið sigur á Wimbledonmót-
inu, árin 1895, 1896 og 1898. Og Charlotte
Cooper brást ekki vonum landa sinna. Hún komst
greiðlega í úrslitaleikinn þar sem hún mætti
frönsku stúlkunni Héléne Prévost. Þar vann
Cooper öruggan sigur og var þar með orðin fyrsti
kvenmaður sögunnar til að vinna ólympíumeist-
aratitil. Þennan eftirminnilega sigur bar upp á 11.
júlí árið 1900. Skömmu síðar unnu síðan þau
Charlotte Cooper og Reginald Frank Doherty
sigur í tvenndarkepninni. Englendingar unnu þar
með alla fjóra ólymplumeistaratitlana, en ekki var
keppt í tvíliðaleik kvenna. Charlotte Cooper hélt
áfram tenniskeppni I all mörg ár enn og vann t.d.
sigur á Wimbeldonmótum árin 1901 og 1908.
Af Doherty-bræðrunum er það að segja að þeir
dóu báðir úr tæringu, langt um aldur fram. Hugh
Lawrence lést 44 ára gamall, en
bróðir hans náði aðeins 38 ára
aldri. Hins vegar varð Charlotte
Cooper allra kerlinga elst og
þegar hún andaðist, árið 1966,
var hún orðin 96 ára gömul.
Mikil þáttaskil urðu á leikunum
í Stokkhólmi 1912 en þá kepptu
konur í fyrsta sinn í sundi.
Þótti mörgum það jaðra við
siðleysi er sundkonurnar komu
fram í þunnum og aðskornum
sundbolum.
28 • VERA