Vera - 01.10.2001, Blaðsíða 6

Vera - 01.10.2001, Blaðsíða 6
Spurning mánaðarins: Er orðið Rauðsokka jákvætt eða neikvætt í þínum huga? Inga Sigrún Þórarinsdóttir Mjög jákvætt. Þær hafa gert mjög marga jákvæða hluti. Hólmfríður Þóroddsdóttir Jákvætt, vegna þess að þær hafa gert mikið í gegnum tíðina og breytt miklu fyrir mig. Ég get samt alveg skilið að neikvætt orð fari af þeim því þær fengu stimpil á sig á sínum tíma. Stefanía Baldursdóttir Jákvætt bara, þær gerðu svo gott á sínum tíma og sýndu hvað í þeim bjó. Þorsteinn Einarsson Jákvætt bara. Rauðsokkur og femínistar þurfa að berjast fyrir sínum réttindum því karlmenn eru svín. Brimar Bragi Magnússon Allir eiga rétt á að segja sínar skoðanir. Jón Ólafsson Neikvætt, aðallega út af því að mér finnst þessi rauðsokkubarátta alveg vera komin út í öfgar, allt þetta jafn- réttiskjaftæði. Mér finnst að karlmenn ættu að fara að berjast fyrir jafnrétti. Ari Eldjárn Þegar ég heyri orðið „rauðsokka" þá stuðlar það bara að fordómum, þannig að ég get í rauninni ekki myndað mér almennilega skoðun á því. En þetta hljómar samt frekar öfgafuflt. Guðlaug Árnadóttir Frekar neikvætt. Mér finnst að þetta eigi að snúast um bæði kynin. Ég er aliavega fullorðin kona og mér hefur bara gengið ágætlega. Smælki Köld vatnsgusa framan í netverja í klámhugleiðingum Sænskri vefsfðu er ætlað að bregða þeim sem flakka um Netið f leit að klámi. í stað kláms fá þeir framan í sig ímyndir hreinleika og áróður gegn misnotkun á kvenlíkamanum. Síðan, www.get- somereal.com, hvetur netverja sem áhyggjur hafa af klámi til að snúa vörn f sókn með því að búa til hundruðir platvefsíðna sem heita „super sluts (ýktar druslur) og „horny schoolgirls" (graðar skólastelpur). Þegar klámsæknir netverjar leita að síðum með þessum orðum fá þeir skilaboðin: Klám er fölsun, konur eru ekta. Vonast er til að einhverjir þeirra sjái þá villur síns vegar. "Með þvf að búa til plat klámsfður og staðsetja þær ofarlega hjá leitarvélunum getum við platað vafrara til að velja okkar síður. Og þegar þeir gera það, verður þeim komið á óvart," segir í stefnuskrá síðunnar sem tengist tímaritinu Darling. Reuters fre'tt j| Lesendabréf Að vera eiginkona og dóttir Ég get ekki orða bundist yfir umfjöllun |óns G. Haukssonar um opnun Búnaðarbankans í Lúx. „Sigurjóna klippti á borðann." Hver er hún? spyr maður sig strax. Bankamála- ráðherrann? Nei, utanríkisráð- herrafrúin. Ok, en er það efni í fyrirsögn? Þau sem þekkja þessa konu ekki - enda hefur hún hing- að til haldið sig utan kastljósa fjölmiðlanna - og lesa aðeins fyrir- sagnir, (því meginhluti þjóðarinnar les ekkert annað) eru engu nær... Fyrirsögnin er ekki í neinu sambandi við fréttina og vekur lítinn áhuga á að lesa meira (því við sjáum á myndinni að þetta er ekki Sigurjóna Sverrisdóttir sem er eina þjóðþekkta Sigurjónan). Myndatextarnir við greinina slá þó öll met: „Anna Kristín lónsdóttir fyrrv. fréttamaður á RÚV (dóttir )óns Sigurðssonar, bankastjóra NIB) og eiginkona Lárusar Blöndal hjá EUROSTAT." Við hlið hennar standa tveir karlmenn sem eru aðeins nafngreindir. Af hverju fæ ég ekki að vita hvað konurnar þeirra heita og hvað þær gera? Eða feður þeirra? Og hver er lónína Magnúsdóttir sem einhver endurskoðandi heldur utan um? Hvf hefur hún engan titil? Hvorki titluð eiginkona né dóttir sem virðist þó vera stefna blaðsins því að við fáum að vita að Sigrún Eyjólfsdóttir er eiginkona Árna Páls Árnasonar (það kemur okkur auðsjáanlega ekkert við hvað hún gerir annað), við erum kynnt fyrir Auði Hermannsdóttur eiginkonu Guðjóns Sævarssonar og fyrir Kolbrúnu Eir Óskarsdóttur eiginkonu Arnars Guðmundssonar... hjá þeim standa tvær konur sem eru lík- lega piparjúnkur því ekki eru menn þeirra taldir upp, úps ég sé það núna, þær vinna hjá Búnaðarbankanum, kannski af því að þær gengu ekki út? Og af hverju fáum við ekkert að vita um hjúskapar- stöðu Margrétar Stefánsdóttur og Daggar Pétursdóttur? í fúlustu alvöru, ég stóð í þeirri trú að Frjáls verslun væri nútímalegt blað. Mér finnst það viðhorf til kvenna sem endurspeglast í þessum myndatextum ekki bera þess vott. Það er ekkert að þvf að vera eiginkona og dóttir en í blaði eins og FV ættu konur að vera vegna eigin ágætis - eða a.m.k. á sömu forsendum og karlar. Þannig að ef það er stefna blaðsins að ættfæra konur og kenna þær við menn sfna, krefst ég sem dyggur lesandi blaðsins, að það sama sé gert með karla. Ragiiíiildur Vigfúsitóttir 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.