Vera - 01.10.2001, Blaðsíða 37
Kristín Þóra Harðardóttir kaffifíkill:
„Þegar ég hætti að þamba mjólk þá byrjaði ég að
drekka kaffi. 13 ára var ég orðin alvöru kaffikona,
drakk svart og sykurlaust án þess að blikna. Síðan
hef ég elskað kaffi. Fríða vinkona mín kenndi mér
svo fyrir nokkrum árum að búa til expressokaffi
með soðinni mjólk og ég féll flöt fyrir því. Þegar
mjólkurstrokkar til að búa til froðumjólk bættust í hópinn þá
var þetta fyrst orðið almennilegt og ég drekk ekki öðruvfsi kaffi
núorðið. Það er útilokað að ég komist í gang á morgnana fyrr
en ég hef svolgrað í mig einum stórum bolla af slíku
mjólkurkaffi á fastandi maga sem maðurinn minn hellir upp á
handa okkur. Og það dugar mér allan daginn. Ég hef aldrei
skilið fólk sem nennir að sötra þunnt kaffi frá morgni til
kvölds. Á virkum dögum drekkum við hjónin kaffið okkar úr
hvunndagsbollum en um helgar úr sérstökum sparibollum
sem við keyptum okkur á Krít. Ég get ekki hugsað mér að lifa
án þessa svarta drykkjar enda fæ ég höfuðverk eftir nokkra
tíma ef ég fæ ekki morgunkaffið mitt. Ég er ákaflega stolt yfir
því að mér hefur tekist að venja tvær vinkonur mínar á að
drekka kaffi á gamals aldri. Þær voru heitir andstæðingar þar
til ég bauð þeim upp á alvöru kaffi frá konunum í Kaffitári sem
mér finnst framleiða langbesta kaffið hérlendis."
Hafdís Hrund Gísladóttir af kaffihúsakynslóðinni
„Mér þótti kaffi ógeðslega vont og drakk það aldrei
fyrr en ég varð ófrfsk af mínu fyrsta barni fyrir þre-
mur árum. Ég hef enga haldbæra skýringu á þeim
undarlegheitum, kannski hafa bragðlaukarnir
fengið hormónakast. Umpólunin varð fyrir algera
tilviljun því ég var gestkomandi í húsi þar sem
engrar undankomu var auðið með að þiggja kaffi
og þegar ég saup á þótti mér það bara gott! Síðan
hef ég drukkið kaffi og kann því vel. Ég drekk
nánast hvaða kaffi sem er, gamaldags
uppáhellingur með kaldri mjólk finnst mér ekkert
síðri en expressokaffi með heitri flóaðri mjólk.
Maðurinn minn gaf mér svakafína, appelsínugula
expresso-kaffivél í afmælisgjöf eftir að ég tók upp á
þessari kaffidrykkju og mér finnst kaffið úr henni
æðislega gott. Svo skelli ég mér þó nokkuð á kaffi-
húsin í bænum og finnst notalegt að sitja þar með
ilmandi bolla. Ég fæ mér alltaf kaffi-latte á kaffi-
húsum og finnst það best á Vegamótum en þar er
kaffið frá Te og Kaffi. Ég er ekki sólgin í kaffi og
drekk það ekki á hverjum einasta degi, suma daga
drekk ég mikið af því og aðra daga ekkert. Þetta fer
eftir því hvernig ég sjálf er stemmd og hvað ég er
að fást við. Ég kaupi alltaf annaðhvort Lavazza-kaffi
eða Kaffitárskaffi til að hella upp á heima hjá mér.
Svo ætla ég að'koma mér upp kaffikvörn því kaffi er
auðvitað allra best nýmalað."