Vera - 01.10.2001, Blaðsíða 14
Bára Magnúsdóttir
KARLVERAIM
A móti öllu sem treður á manneskjunni
Anarkismi er hugmyndafræði sem gerir
ráð fyrir því að fólk almennt geti skipu-
lagt eigið samfélag án yfirvalds. Að ein-
staklingar innan samfélagsins geti axlað
jafna ábyrgð eftir því sem á við hvert og
eitt okkar og við þannig unnið saman
að bættu mannlífi. Anarkismi er á móti
kapitalisma og rasisma; öllu sem treður
á manneskjunni. Munurinn á anarkisma
og frjálshyggju er helst sá að frjáls-
hyggjumenn vilja frelsi án ábyrgðar.
Anarkistar vilja jöfnuð. Til eru laumu-
kapitalistar sem þykjast vera anarkistar,
þau vilja græða peninga án tillits til
afleiðinganna og kalla sig anarko-
kapitalista. Anarkistar vilja treysta fólki
til að taka ábyrgð.
hráleika, Ijótleika í tónlist og
klæðaburði - sem er hryllingur fyrir
'venjulegt' fólk. Sem hjúkrunar-
fræðingur er ég í snertingu við fólk,
lífið í sinni hráustu mynd, fólk sem er
að ganga í gegnum erfiða hluti og
stundum fólk sem er að deyja og veit
af því.
Sigurður Harðarson
heldur úti tveimur
heimasíðum á Netinu og er í
tveimur hljómsveitum,
Forgarði Helvítis, sem hefur
verið starfrækt í tíu ár og
pönkrokk hljómsveitinni Dys
sem er nýstofnuð. Hann skrif-
ar dagbók á sinni persónu-
legu heimasíðu og þar
hrósaði hann Veru nýlega
sem 'eina tímaritinu sem
hefur eitthvað að segja'.
Anarkisti í vinnu hjá ríkinu
Af því að ég lifi undir kapitalisma þá
verð ég að mæta í vinnu til að fram-
fleyta mér, og þetta er eina leiðin sem
ég gat verið sáttur við lífið og tilveru-
na, að starfa í heilbrigðisgeiranum.
Pönkarareru á móti þeirri glansmynd
sem manneskjum er potað í, þess-
vegna hafa pönkarar oft velt sér upp úr
Feministi, svo langt sem
þad nær fyrir karlmann
Ég hef ekki lesið sérstaklega um femin-
isma en hinsvegar mikið af skrifum
pönkara, og í pönkinu eru konur sterkar
Ifka. Ég er búinn að vera að hlusta á
anarkistapönk síðan ég var 12 ára, það
er í 22 ár. Hljómsveitin Crass var skipuð
körlum og konum og var með sterkan
feminismaáróður á plötunni 'Penis
Envy'. Allt um hvernig karlarættu ekki
að níðast á konum, ættu að bera virðin-
gu fyrir þeim eins og öðru fólki. Svo
lærði ég heilmikið með þvf að umgan-
gast konur í hjúkrunarfræðináminu. Það
eru ekkert allar konur eins, og þar af
leiðandi ekkert hægt að segja að maður
‘skilji konur'.