Vera - 01.10.2001, Blaðsíða 33

Vera - 01.10.2001, Blaðsíða 33
/ ér er á ferðinni óvenju metn- M aðarfullt verk og mikil vinna M B sem liggur að baki en Ásgerð- ■""jB ur segist vera mikil kvenrétt- W indakona og hafa unnið verkið af innri þörf. „Þetta var óskap- lega gefandi vinna og gaman að kynnast öllum þessum frábæru Ijóðum og lögum. Ég var reyndar oft í vandræðum með að velja því það er til svo mikið af fallegum Ijóðum eftir konur. Ég kynntist mörgum frá- bærum konum sem ýmist lánuðu mér Ijóð eða lög eða sömdu sérstaklega fyrir mig," segir hún og minnist m.a. á þær öldnu heiðurskonur lórunni Viðar og Oddnýju Kristjánsdóttur, ljóðskáld í Villingaholts- hreppi sem varð níræð fyrir skömmu. „Ég vildi hafa diskinn ferskan og gefa nýja sýn á lög og Ijóð kvenna, í stað þess að velja bara klassísk sönglög. Ég fór þvf alla leið - valdi Ijóð eftir konur á ýmsum aldri til að fá sem mesta breidd í viðfangsefnin. Þarna er sem sé bæði ort um ástir og rómantík og baráttu kvenna fyrir sjálfstæði. Til að fá fjölbreytni í tónlistina fékk ég líka.konur sem hafa unnið í poppi til að semja lög. Þó að þetta sé ný- stárlegt er yfirbragðið að sjálfsögðu klass- ískt þar sem ég er klassísk mezzósópran söngkona." Þarna á Ásgerður við konur eins og Röggu Gísla, systur sína Móu, Möggu Stínu og Margréti Örnólfsdóttur. Á disknum er einnig lag eftir Björku, sem reyndar er ekki frumsamið. Ásgerður fékk að velja óbirt lag eftir Björku en það er nú komið út í annarri útsetningu á nýjustu plötu Bjarkar, Vespertine. „Yngsta tónskáldið er Þóra Marteinsdóttir, fædd 1978. Hún var við nám í tónsmíðadeild Tónlistarskólans og ég hafði samband við hana og bað hana að semja fyrir mig lag sem tókst Ijómandi vel. Ég fékk líka ný lög frá Þurfði Jónsdóttur, sem útskrifaðist árið 2000 úr tónsmíðanámi á Ítalíu, Elínu Gunnlaugsdóttur sem er rúm- lega þrítugt tónskáld og Karólínu Eiríks- dóttur sem ekki þarf að kynna. Að sjálf- sögðu valdi ég Ifka lög eftir klassísk tón- skáld eins og Selmu Kaldalóns, lórunni Við- ar, Hildigunni Rúnarsdóttur, Mist Þorkels- dóttur og Báru Grímsdóttur en mér þótti Ifka mikilvægt að finna lög eftir konur sem minna er vitað um og naut þar ómetanlegr- ar aðstoðar Tónverkamiðstöðvarinnar og Aðálheiðar Þorsteinsdóttur sem þar starf- aði. Það eru þær Elísabet lónsdóttir sem hafði samið lag eftir Huldu, María Brynjólfs- dóttir, fædd 1919, sem samdi lag við Ijóð eftir lakobínu lohnson, og Ingunn Bjarna- dóttirsem lést 1972. Hún eramma Hróð- mars lnga Sigurbjörnssonar en hann útsetti lagið hennar Bjarkar við ljóð eftir Diddu." ‘MezzósójjranrödcCín í cettínní Þegar Ás.gerður er spurð um söngferil sinn segist hún hafa haft áhuga á leiklist þangað til hún mætti í söngtíma hjá Guðmundu El- íasdóttur þegar hún var 19 ára gömul. Eftir fyrsta tímann fann hún að söngkona vildi hún verða og ekkert annað. „Guðmunda er ömmusystir mín og hafði stundum ýjað að því við mömmu mína að ég ætti að læra að syngja. Líklega er mezzósópran röddin í ættinni en mitt raddsvið ertalsvert líkt hennar. Amma mín, Þorgerður Nanna Elías- dóttir, söng líka mikið og mamma, Guðrún Guðlaugsdóttir blaðakona, hefur Ifka lært söng." Ásgerður lærði í þrjú ár hjá Guð- mundu, fór svo f Söngskólann í Reykjavík og lauk prófi 1994. Þá fór hún til London og nam hjá Graziellu Sciutti, ítalskri divu sem var vinkona Mariu Callas og söng með henni. Þegar heim kom lærði hún hjá pólsku mezzosópran söngkonunni Alinu Dubik sem hún segir að sé frábær kennari og hafi kennt sér mikið. „Ég hélt formlega debutttónleika í Salnum 4. apríl 2000 og fannst það stór stund. Það var líka mikið álag því sonur minn, Flóki, var aðeins fimm mánaða þegar ég hóf undirbúning en ég á líka 9 ára gamla stelpu, lúníu. Síðan ég lauk námi hef ég haft nóg að gera. Ég frumflutti t.d. stórt verk eftir Karólínu Eiríksdóttur í Skálholti í sumar og hafði mjög gaman að. Ég frumflutti líka verk eftir lórunni Viðar sem hún samdi við aldamótakviðu eftir Sjón. Það var tekið upp fyrir Sjónvarpið og sýnt um jólin í fyrra." Óiperur fyrír eína röcCcí Ásgerður segist hafa gaman af að syngja alls konar tónlist og minnist elektrónískrar kammeróperu sem hún flutti íTilrauneld- húsinu í Kaffileikhúsinu ásamt Völu Þórs- dóttur og hljómsveitinni Múm. Það var við Ijóðið Kisa sem líka er eftir manninn henn- ar, Sjón. Hún hefur einnig unnið í leikhúsi og við kvikmyndatónlist með Hilmari Erni Hilmarssyni. „Mig langarað setja upp litlar óperur, jafnvel fyrir eina rödd, og fá tón- skáld og Ijóðskáld til liðs við mig. Ég veit að maður getur gert allt sem manni dettur í hug, bara ef frumkvæði er til staðar," segir Ásgerður og getur svo sannarlega sýnt fram á það með geisladisknum sínum Minn heimur og þinn. Það nafn er dregið af ljóði eftir móður hennar, Guðrúnu Guðlaugsdótt- ur, sem er á disknum en systir hennar Mó- eiður lúníusdóttir samdi lagið. Kápumynd- ina á disknum tók Sigríður Zoéga, fyrsta ís- lenska konan sem lærði ljósmyndun. „Ég varð svo hrifin af þessari mynd þegar ég sá hana og finnst Sigríður frábær kona," segir Ásgerður og bætir við: „Nýlega var mér fært dagblað frá fæðingardegi mínum, 26. sept- ember 1968. í því er dánartilkynning um Sigríði Zoega. Hún var sem sé að deyja þegar ég fæddist. Svona tekur ein kona við af annarri í þessu lífi," segir hún sposk og minnir á að nauðsynlegt sé að geta þess frábæra tónlistarfólks sem hún fékk til liðs við sig. Þar skal fyrsta telja Steinunni Birnu Ragnarsdóttur á píanó en auk hennar leika þau Bryndís Halla Gylfadóttir á selló, Auður Hafsteinsdóttir á fiðlu, Þórunn Ósk Marin- ósdóttir á víólu, Áshildur Haraldsdóttir á flautu, Hörður Áskelsson á orgel, Reynir lónasson á harmonikku, Marion Herrera á hörpu og sjö félagar úr Schola cantorum syngja með í einu lagi. El>
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.