Vera - 01.10.2001, Blaðsíða 59

Vera - 01.10.2001, Blaðsíða 59
Þórunn Magnúsdóttir Sem bæjarfulltrúi fyrir sósíalista barðist ég fyrir því að herskála- hverfin yrðu lögð niður og íbúum þeirra gefinn kostur á mann- sæmandi húsnæði. ég vaknaði á aðfangadag var ég altekin af bjúg, hendurnar voru svo bólgnar að ég gat ekki hreyft fingurna. Nú, það var ekki um annað að ræða en að drffa mig á sjúkrahús og þar lá ég þartil í mars að ég fæddi barnið. Nokkrum árum seinna lauk svo þessu siðara hjónabandi mfnu einnig með skilnaði." Nú verður þögn, Þórunni er ekki lagið að ræða mikið um einkahagi sína. Og hún fer að segja mér frá Mæðra- styrksnefnd og Mæðrafélaginu sem hún starfaði í af lífi og sál. „Mæðrafélagið reyndi að veita meðlimum sínum ýmsa nýja möguleika," segir Þórunn. „Við fengum úthlutað landspildu í Selási sem var svo skipt upp í garða tii félags- kvenna. Fólk varð að vera mjög hagsýnt á þessum árum og halda rekstrarkost- naði heimilanna f lágmarki. Svo héld- um við námskeið f matreiðslu græn- metis. Einnig voru saumanámskeið, einu sinni man ég að við fengum gamla Stýrimannaskólann til námskeiðshalds. Mæðrastyrksnefnd vann mikið og gott starf á þessum árum og það var gaman að vera með í þessu öllu, þó oft sýndist svart framundan. Ég kynntist mörgum frábærum konum gegnum þessi störf, svo sem Laufeyju Valdimarsdóttur, dótt- ur Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, og Katrínu Pálsdóttur. Laufey var heillandi kona, fyrir henni voru mannúð og hjartahlýja sá mælikvarði sem miða skyldi við. Hún var svo tilfinninganæm að það olli henni oft erfiðleikum. Katrín var um skeið bæjarfulltrúi fyrir kommúnista. Hún var þá ekkja með mörg börn á framfæri, enda lét hún mjög til sín taka málefni kvenna og barna, m.a að ekkjur fengju meðlag með börnum sfnum eins og ógiftar mæður. Þetta komst f fram- kvæmd með tryggingalöggjöfinni. Þá var Katrín um tíma formaður Mæðrafélags- ins og þær Laufey unnu jafnan saman, lfka í Mæðrastyrksnefnd. Báðar voru mikilhæfar konur." Sagnfræðinám og kvennaráðstefnur En hvenær hafðir þú tíma til að fara í háskólanám, Þórunn?" „Ég veit ekki hvort ég hafði tíma. En ég ákvað ein- hverntíma að þegar ég væri orðin fertug skyldi ég gera eitthvað fyrir sjálfa mig, eitthvað sem mig langaði verulega mikið til. Ég hafði alltaf haft löngun til náms og nú ákvað ég að það væri komið að þvf. Ég varð auðvitað að lesa mikið utanskóla vegna heimilisstarfa og fleiri ástæðna. En allt hafðist þetta og 1977 lauk ég BA prófi f sagnfræði, 56 ára gömul, og MA tók ég svo 1982. Þetta var nú ágætt en ég hef stundum hálf séð eftir því að taka ekki doktorsprófið líka, fyrst ég var komin af stað." Og svo hefurðu líka ferðast mikið. „Já, á seinni árum hef ég ferðast tölu- vert. Ég hef reynt að sækja ráðstefnur kvenna og fylgjast með mannréttinda- málum. Hvað mér er minnistæðast? Ég held - kvennaráðstefnan í Peking. Hún var mjög vel skipulögð og á margan hátt athyglisverð. Við gestirnir mættum ákaf- lega mikilli velvild allsstaðar. Kínverjar eru líka svo aðlaðandi fólk yfirleitt. Þegar konur koma svona saman, kynn- ast og ræða sín vandamál, þá fer ekki hjá því að skilningur og samúð aukist. Eitt af því sem mér er ógleymanlegt frá þessari ráðstefnu var fundur ísraelskra og palestfnskra kvenna. Salurinn var sneisafullur og fundarstjóri var palest- fnsk skáldkona. Hún var alltaf jafn róleg þó fundarkonur yrðu æstar og órólegar. Loks þegar hver höndin virtist ætla að vera upp á móti annarri sagði fundar- stjórinn: „Við skulum syngja saman," Og í söngnum var eins og öll vanstilling og sárindi gleymdust, allar sungu saman og friður færðist yfir salinn. Lagið var mjög fallegt og auðheyrilega öllum við- stöddum vel þekkt. Ég náði textanum ekki alveg en hann fjallaði um tréð okkar, sem hann afi gróðursetti í garð- inum og fuglarnir syngja í þvf hvern dag... Þannig lauk þessum fundi. Afrfsku konurnar urðu mér einnig minnisstæðar. Þær voru bæði glæsi- legar og vel máli farnar. Mér þótti dálítið leitt að við íslenskar konur skyldum ekki vera með neina kynningu þarna. Hins vegar var verulega falleg sýning færeyskra kvenna - sem íslensk kona hafði reyndar unnið við að setja upp. Stúdentar, bæði piltar og stúlkur, unnu mikið við hvers konar fyrirgreiðslu á Pekingráðstefnunni og einnig við undirbúninginn sem hafði staðið í tvö ár. Mér fannst þetta unga fólk ákaflega indælt." Eitthvað sem þér fannst ein- kenna daglegt líf Kínverja, öðru fremur? „|á, hvað börnum var sýnd mikil um- hyggja. Þau röltu aldrei á eftir foreldrum sínum, eins og er algengt hér á landi, annað hvort voru þau leidd eða þau gengu á undan, oft þá í beisli. Ég minntist þess að ég var oft með mín börn í beisli. Mér finnst þessi einfalda og þægilega tækni alltof lítið notuð nú orðið. En þetta var nú útúrdúr. Fjöl- skyldusamheldni er augljós í Kína." Hvað virtist þér um mannréttindi austur þar? „|á, ég verð nú að segja," segir Þórunn með áherslu „að ég tek með miklum fyrirvara fréttum vestrænna fjölmiðla um mannréttindabrotin í Kína, svo sem þessar hryllingssögur um barnaútburð, ég hef ekki mikla trú á sannleiksgildi þeirra. Eins og ég sagði er börnum einmitt sýnd svo mikil um- hyggja og virðing hjá Kínverjum. Ég sá oft mæðgur halda hvora utan um aðra á göngu um göturnar. Það er erfitt að hugsa sér slíkar konur bera út börn. Það er blátt áfram ekki rökrétt. Mér sýnist að Vesturlandabúar ættu að líta í eigin barm - hvort þeir virði alltaf mannrétt- indi sem skyldi, áður en þeir taka til við að siða aðrar þjóðir." Ef þú mættir óska þér einhvers á stjórnmálasviðinu, Þórunn, hvað mundir þú þá segja? Sagnfræðingurinn og baráttukonan hugsar sig um. „Ég mundi óska þess að fólkið í heiminum vaknaði til samábyrgðar. Þetta er bara einn heimur, við verðum að bera ábyrgð á honum sameiginlega. Samkenndin verður að koma að innan, úr sjálfsvit- und hvers einstaklings. Frelsi er fallegt orð en það er svo auðvelt að misnota frelsið. Sjáðu öll umferðaslysin hérna á íslandi - sem stafa af því að fólk tekur sér of mikið frelsi. Og beltislausu börnin f bílunum - næturgöltrið. Ég nefni þetta bara af handahófi en vandamálin eru á öllum sviðum mannlífsins. Við verðum að taka okkur tak," segir þessi lífsreynda kona að lokum. o
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.