Vera - 01.10.2001, Blaðsíða 9

Vera - 01.10.2001, Blaðsíða 9
Hversdagshetjur með húmor Vinkonurnar og samstarfs- konurnar Vala Þórsdóttir og Ágústa Skúladóttir hafa gaman af að spinna leikrit og sprella. Þær hafa þrisvar samið leikrit saman og sett ó svið í nafni leikhúss sem þær stofnuðu fyrir fimm órum i Bretlandi og nefndu íslenska skyndibitaleikhúsið - The lcelandic Take Away Theatre. Nýjasta afurð þeirra er nú sýnd í Kaffileikhúsinu og nefn- ist Veröldin er vasaklútur. „Leikritið fjallar um tvær konur sem þekkjast mjög vel, það eru sterk tengsl á milli þeirra. Þær eru bakarar í litl.um bæ og flækjast inn í andspyrnuhreyfingu á stríðstím- um. Þar taka þær til sinna ráða þegar þær þurfa að hjálpa fólki og bjarga því úr hremmingum. Við það nota þær sitt eigið hyggjuvit ogþaðerekki lítið," segja Ágústa og Vala og Ijóma af ánægju. Það er nefnilega svo gaman að leika svona flottar kerlingar, konur sem verða ekki hræddar þótt á móti blási, sannkallaðar hetjur með húmorinn á réttum stað. Alls hef- ur The lcelandic Take Away Theatre sett upp níu leiksýningar hér á landi og í Bretiandi og er stærsta sýningin Dóttir skáldsins eftir Svein Einarsson sem sýnd var í Bretlandi og hér á landi, m.a. í mörgum skólum. Ágústa og Vala hafa komið að flestum sýninganna og hefur Ágústa bæði leikstýrt og leikið. Er skemmst að minnast þess að hún leikstýrði einleiknum Háalofti sem Vala samdi og lék í Kaffileikhúsinu sl. vetur. Verkið vann fyrstu verðlaun á kvennaleik- húshátíð í Finnlandi í sumar og fékk viðurkenningu á leiklistar- hátíð í Búdapest ásamt leikgerð sem þær gerðu á ensku upp úr bókinni Englar alheimsins. Og það sem meira er - nú er verið að þýða Háaloft á tyrknesku og þar verður það bráðlega sett á svið. „Okkur finnst mjög skemmtilegt að fara á leiklistarhátíðir frjálsra leikhópa. Við eigum boð á hátíð á Ítalíu og í Kanada, við höfðum bara ekki tíma til að fara þangað í sumar. Á þessum hátíðum sjáum við hvað aðrir eru að gera og lær- um hvemig hægt er að hafa hlut- ina einfalda. Okkar mottó er hreyf- anleiki, við miðum verkin við að þau verði sett upp í litlu rými og að umbúnaðurinn sé ekki of fyrir- ferðarmikill." Veröldin er vasaklútur er sam- starfsverkefni þeirra fjögurra sem að verkinu standa - Ágústu, Völu, Katrínar Þorvaldsdóttur leik- mynda- og búningahönnuðar og Neil Haigh leikstjóra. Eins og í fyrra eru þriðjudagskvöldin í Kaffi- leikhúsinu „tveir fyrir einn" - þ.e. tveir miðar seldir á verði eins. Hægt er að kaupa ljúffenga máltíð fyrir sýningu öll sýningarkvöld, eins og hefur verið aðalsmerki Kaffileikhússins. XL LU 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.