Vera - 01.10.2001, Blaðsíða 29

Vera - 01.10.2001, Blaðsíða 29
Reynslusaga að tók mig nokkur ár að viður- 1 kenna að mér hefði verið nauðgað. Enn lengri tíma tók það mig að viðurkenna að það væri ekki mín sök og stundum efast ég um að ég sé fullkomlega sátt við það ennþá að hafa ekki getað brugðist öðruvísi við. En fortíðin er liðin og maður breytir henni ekki þó að maður staldri við og hugsi um öll enin og efin - ef ég hefði ekki gert þetta, ef ég hefði gert hitt. Eina sem ég get hugsað um er - hlutirnir gerðust og hvernig ætla ég að bregðast við því. Ég get ekki breytt atburðunum en ég get breytt viðhorfum mínum til þeirra. Ef vinkona mín kæmi með þessar lýsingar á atburðum myndi ég ekki efast eina sekúndu um að um nauðgun hafi verið að ræða. Oft er maður mikið harð- ari við sjálfan sig en aðra. Mér hefur verið nauðgað tvisvar sinnum. í fyrra skiptið var ég 16 ára á ferðalagi með fullt af fólki á mínum aldri og aðeins eldra. Ég þekkti ekki mjög marga í hópnum en kannaðist við nokkra. Við fórum í réttir sem byrjuðu eldsnemma um morguninn og um kvöldið var ball. Fólk skemmti sér mikið og á ballinu var ég eitthvað að slá mér upp með strák en ekkert meira varð úr því - hann var ekki með hópnum en þekkti til hans. Eftir ballið fórum við í skóla þar sem við gistum. Ég hafði drukkið í hófi en var auðvitað orðin þreytt og útkeyrð eftir að hafa vakað næstum í sólarhring. Ég tók svefnpok- ann minn, fór út í horn og fór að sofa. Ég vakna við það að verið er að nauðga mér. Ég gruna þennan frá ballinu - ég frétti það síðar að hann og vinir hans hefðu gist þarna en ég sá hann ekki al- mennilega. Það hvarflaði ekki að mér á þessum tíma að þetta hafi verið nauðg- un - ég leit á þetta sem óheppni - þagði um þetta og hélt áfram með mitt líf. Sumarið þegar ég var 19 ára fór ég í þrjá mánuði sem au-pairtil S-Evrópu. Ég bjó í litlum bæ og þegar ég átti frí fór ég oft til borgar rétt hjá. Þar var á tímabili íslensk au-pair sem ég hitti oft. Eitt kvöldið var ég að bíða eftir rútunni heim, sat á kaffihúsi og fór að spjalla við tvo stráka - þeir voru forvitnir um ís- land og töluðum við bara um daginn og veginn. Annar þeirra gekk með mér að rútustöðinni og bauð mér út aftur en ég afþakkaði - reyndar kyssti ég hann einn koss. Eftir þetta kom ég um vikulega til borgarinnar, aldrei samt á sama degi né sama tíma. Það brást ekki að ég var varla komin út af rútustöðinni að þá var hann mættur. Stundum talaði ég við hann og við settumst inn á kaffihús en yfirleitt reyndi ég að hrista hann af mér, (MenníngarbuncCíð ofSeCcCí en hann var samt aldrei langt undan. Hann ítrekaði boð sitt um að ég kæmi með honum út en ég afþakkaði það - enda var hugur minn hjá öðrum strák. Ég var aldrei hrædd við hann, fannst hann vera hálf meinlaus - jafnhár og ég. Hann bað um símanúmer og heimilis- fang en ég gaf það ekki upp - einhvern veginn komst hann samt að heimilis- fanginu. Ef ég var með öðru fólki í bæn- um hélt hann sig fjarri en ég sá hann samt alltaf. Daginn sem hann nauðgaði mér hafði ég komið snemma í bæinn, ætlaði að versla þar sem ég átti 1/2 mánuð eftir af dvölinni. Ég sá hann ekki fyrr en um hádegið - en þá var ég búin að versla í bili og ætlaði heim með næstu rútu eftir tvær klukkustundir. Hann spurði hvort ég hefði farið á mark- aðinn sem var einu sinni í viku og bauðst til að fylgja mér þangað, sem ég þáði. Markaðurinn var niður við á og þegar við komum þangað var verið að taka saman. Ég ætlaði því bara að rölta til baka en þar sem ég var ekki viss á leiðinni enduðum við inni í smá skógi fyrir neðan hraðbraut og vorum þar orð- in ein. Hann spyr hvort ég vilji ekki sofa hjá séren ég neitaði þvf. Hann varð reiður, sagði mér að ég væri búin að draga hann á asnaeyrum og hætti svo við á síðustu stundu. Hann réðst á mig þarna, ég tók aðeins á móti fyrst en hann náði að halda mér fastri og missti ég allan mátt. Eftir að hann hafði lokið sér af rétti hann mér vasaklút til þess að ég gæti þurrkað mér. Ég sagði ekki orð - fann skóna mína, pilsið og nærfötin og gekk í burtu. Hann elti og skildi ekkert í því að ég væri reið - þetta var jú það sem ég vildi. Ég náði að hrista hann af mér, fór í næstu búð, keypti mér hrein nærföt og fór svo á rútustöðina. Hann beið þar eftir mér en sneri baki í mig. Ég tók stóran sveig og náði að fara inn í rútuna án þess að hann sæi - hann tók eftir mér þegar rútan keyrði í burtu. Ég sá hann ekki eftir þetta en tveimur dögum síðar fékk ég bréf frá honum þar sem hann tjáði mér ást sfna og skildi ekki reiðina og endaði svo bréfið á að segj- ast geta gifst mér ef það væri það sem ég vildi. Ég fór ekki aftur í borgina fyrr en ég tók lestina heim hálfum mánuði sfðar. Stundum fannst mér eins og ég sæi hann í bænum mínum en ég fór aldrei ein út eftir þetta. Eins og með fyrri nauðgunina viður- kenndi ég ekki að þetta væri nauðgun heldur ákvað að gleyma þessu. Tveimur mánuðum síðar þegar ég var komin heim uppgötvaði ég að ég væri ófrísk. Ég gat ekki sagt neinum frá því og dró það að fara til læknis enda bjó ég úti á landi og þar fréttist oft fljótt um bæinn það sem gerist á heilsugæslustöðinni. Ég missti fóstrið komin 12—14 vikur á leið og náði að leyna þessu fyrir öllum. Ég fór ekki til læknis og fannst ég vera ótrúlega heppin að engin eftirköst urðu. En núna hugsa ég að það hefði verið betra ef þetta hefði komist upp. Ég hefði þá leitað mér hjálpar fyrr. Próf til að finna svefnlyf í ófengi Nýlega hefur verið fundin upp í Bretlandi auðveld aðferð til að komast að því hvort svæfingarlyfi hafi verið hellt í drykk fórnarlamba nauðgana, kallað á ensku Date rape drug test. Með þvf að dýfa prufuspjaldi úr litmúspappír í glas sem grun- ur leikur á að innhaldi óæskileg efni auk áfengis, er hægt að komast að hinu sanna. Prófið er selt f handhægum umbúðum á 4.95 pund og getur m.a. komið upp um Rohipnol sem blandast áfengi mjög auðveldlega. Maður að nafni Mr. Simms hefur hafið sölu á uppfinningu sinni og sagði í samtali við BBC www.bbc.co.uk/fivelive að ef prófið væri notað um leið og manneskja finnur fyrir skrýtnum áhrifum af drykk hafi hún nægan tíma til að koma sér úr hættunni. Svæfingarlyfjaprófið („Dip it in" kit) minnir á þungunarpróf sem seld eru f Bret- landi og segist Mr. Simms vita að margir barir og klúbbar hafi áhuga á að hafa það á boðstólum. Prófið verður einnig til sölu í helstu lyfjaverslunum Bretlands innan tíðar og einnig er hægt að panta það á www.dipitin.com. www.ananova.com/news/story/sm_418791 .html 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.