Vera - 01.10.2001, Síða 29
Reynslusaga
að tók mig nokkur ár að viður-
1 kenna að mér hefði verið
nauðgað. Enn lengri tíma tók
það mig að viðurkenna að það væri ekki
mín sök og stundum efast ég um að ég
sé fullkomlega sátt við það ennþá að
hafa ekki getað brugðist öðruvísi við. En
fortíðin er liðin og maður breytir henni
ekki þó að maður staldri við og hugsi
um öll enin og efin - ef ég hefði ekki
gert þetta, ef ég hefði gert hitt. Eina
sem ég get hugsað um er - hlutirnir
gerðust og hvernig ætla ég að bregðast
við því. Ég get ekki breytt atburðunum
en ég get breytt viðhorfum mínum til
þeirra. Ef vinkona mín kæmi með þessar
lýsingar á atburðum myndi ég ekki efast
eina sekúndu um að um nauðgun hafi
verið að ræða. Oft er maður mikið harð-
ari við sjálfan sig en aðra.
Mér hefur verið nauðgað tvisvar
sinnum. í fyrra skiptið var ég 16 ára á
ferðalagi með fullt af fólki á mínum
aldri og aðeins eldra. Ég þekkti ekki
mjög marga í hópnum en kannaðist við
nokkra. Við fórum í réttir sem byrjuðu
eldsnemma um morguninn og um
kvöldið var ball. Fólk skemmti sér mikið
og á ballinu var ég eitthvað að slá mér
upp með strák en ekkert meira varð úr
því - hann var ekki með hópnum en
þekkti til hans. Eftir ballið fórum við í
skóla þar sem við gistum. Ég hafði
drukkið í hófi en var auðvitað orðin
þreytt og útkeyrð eftir að hafa vakað
næstum í sólarhring. Ég tók svefnpok-
ann minn, fór út í horn og fór að sofa.
Ég vakna við það að verið er að nauðga
mér. Ég gruna þennan frá ballinu - ég
frétti það síðar að hann og vinir hans
hefðu gist þarna en ég sá hann ekki al-
mennilega. Það hvarflaði ekki að mér á
þessum tíma að þetta hafi verið nauðg-
un - ég leit á þetta sem óheppni -
þagði um þetta og hélt áfram með mitt
líf.
Sumarið þegar ég var 19 ára fór ég í
þrjá mánuði sem au-pairtil S-Evrópu.
Ég bjó í litlum bæ og þegar ég átti frí
fór ég oft til borgar rétt hjá. Þar var á
tímabili íslensk au-pair sem ég hitti oft.
Eitt kvöldið var ég að bíða eftir rútunni
heim, sat á kaffihúsi og fór að spjalla
við tvo stráka - þeir voru forvitnir um ís-
land og töluðum við bara um daginn og
veginn. Annar þeirra gekk með mér að
rútustöðinni og bauð mér út aftur en ég
afþakkaði - reyndar kyssti ég hann einn
koss. Eftir þetta kom ég um vikulega til
borgarinnar, aldrei samt á sama degi né
sama tíma. Það brást ekki að ég var
varla komin út af rútustöðinni að þá var
hann mættur. Stundum talaði ég við
hann og við settumst inn á kaffihús en
yfirleitt reyndi ég að hrista hann af mér,
(MenníngarbuncCíð ofSeCcCí
en hann var samt aldrei langt undan.
Hann ítrekaði boð sitt um að ég kæmi
með honum út en ég afþakkaði það -
enda var hugur minn hjá öðrum strák.
Ég var aldrei hrædd við hann, fannst
hann vera hálf meinlaus - jafnhár og ég.
Hann bað um símanúmer og heimilis-
fang en ég gaf það ekki upp - einhvern
veginn komst hann samt að heimilis-
fanginu. Ef ég var með öðru fólki í bæn-
um hélt hann sig fjarri en ég sá hann
samt alltaf. Daginn sem hann nauðgaði
mér hafði ég komið snemma í bæinn,
ætlaði að versla þar sem ég átti 1/2
mánuð eftir af dvölinni. Ég sá hann ekki
fyrr en um hádegið - en þá var ég búin
að versla í bili og ætlaði heim með
næstu rútu eftir tvær klukkustundir.
Hann spurði hvort ég hefði farið á mark-
aðinn sem var einu sinni í viku og
bauðst til að fylgja mér þangað, sem ég
þáði. Markaðurinn var niður við á og
þegar við komum þangað var verið að
taka saman. Ég ætlaði því bara að rölta
til baka en þar sem ég var ekki viss á
leiðinni enduðum við inni í smá skógi
fyrir neðan hraðbraut og vorum þar orð-
in ein. Hann spyr hvort ég vilji ekki sofa
hjá séren ég neitaði þvf. Hann varð
reiður, sagði mér að ég væri búin að
draga hann á asnaeyrum og hætti svo
við á síðustu stundu. Hann réðst á mig
þarna, ég tók aðeins á móti fyrst en
hann náði að halda mér fastri og missti
ég allan mátt.
Eftir að hann hafði lokið sér af rétti
hann mér vasaklút til þess að ég gæti
þurrkað mér. Ég sagði ekki orð - fann
skóna mína, pilsið og nærfötin og gekk
í burtu. Hann elti og skildi ekkert í því
að ég væri reið - þetta var jú það sem
ég vildi. Ég náði að hrista hann af mér,
fór í næstu búð, keypti mér hrein nærföt
og fór svo á rútustöðina. Hann beið þar
eftir mér en sneri baki í mig. Ég tók
stóran sveig og náði að fara inn í rútuna
án þess að hann sæi - hann tók eftir
mér þegar rútan keyrði í burtu. Ég sá
hann ekki eftir þetta en tveimur dögum
síðar fékk ég bréf frá honum þar sem
hann tjáði mér ást sfna og skildi ekki
reiðina og endaði svo bréfið á að segj-
ast geta gifst mér ef það væri það sem
ég vildi. Ég fór ekki aftur í borgina fyrr
en ég tók lestina heim hálfum mánuði
sfðar. Stundum fannst mér eins og ég
sæi hann í bænum mínum en ég fór
aldrei ein út eftir þetta.
Eins og með fyrri nauðgunina viður-
kenndi ég ekki að þetta væri nauðgun
heldur ákvað að gleyma þessu. Tveimur
mánuðum síðar þegar ég var komin
heim uppgötvaði ég að ég væri ófrísk.
Ég gat ekki sagt neinum frá því og dró
það að fara til læknis enda bjó ég úti á
landi og þar fréttist oft fljótt um bæinn
það sem gerist á heilsugæslustöðinni.
Ég missti fóstrið komin 12—14 vikur á
leið og náði að leyna þessu fyrir öllum.
Ég fór ekki til læknis og fannst ég vera
ótrúlega heppin að engin eftirköst urðu.
En núna hugsa ég að það hefði verið
betra ef þetta hefði komist upp. Ég
hefði þá leitað mér hjálpar fyrr.
Próf til að finna svefnlyf í ófengi
Nýlega hefur verið fundin upp í Bretlandi auðveld aðferð til
að komast að því hvort svæfingarlyfi hafi verið hellt í drykk
fórnarlamba nauðgana, kallað á ensku Date rape drug test.
Með þvf að dýfa prufuspjaldi úr litmúspappír í glas sem grun-
ur leikur á að innhaldi óæskileg efni auk áfengis, er hægt að
komast að hinu sanna. Prófið er selt f handhægum umbúðum
á 4.95 pund og getur m.a. komið upp um Rohipnol sem
blandast áfengi mjög auðveldlega. Maður að nafni Mr. Simms
hefur hafið sölu á uppfinningu sinni og sagði í samtali við
BBC www.bbc.co.uk/fivelive að ef prófið væri notað um leið
og manneskja finnur fyrir skrýtnum áhrifum af drykk hafi hún
nægan tíma til að koma sér úr hættunni. Svæfingarlyfjaprófið
(„Dip it in" kit) minnir á þungunarpróf sem seld eru f Bret-
landi og segist Mr. Simms vita að margir barir og klúbbar hafi
áhuga á að hafa það á boðstólum. Prófið verður einnig til
sölu í helstu lyfjaverslunum Bretlands innan tíðar og einnig
er hægt að panta það á www.dipitin.com.
www.ananova.com/news/story/sm_418791 .html
29