Vera - 01.10.2001, Blaðsíða 69

Vera - 01.10.2001, Blaðsíða 69
Málfar Guðrún Kvaran Skammaryrði um karla og konur Oft er rætt um muninn á mál- fari karla og kvenna og oft vill gæta hleypidóma sem ekki eiga við rök að styðjast, einkum ef umræðuefnið hefur lítið verið athugað. Meðal þess sem heyrst hefur er að karlar noti grófari orð um konur og að fleiri neikvæð orð séu til um konur en karla. í grein sem birtist í Mími fyrir tæpum áratug um þetta efni komust höfundar að þeirri niðurstöðu að karlmenn væru grófari í orðavali. f greininni segir: „þótt endalaust sé hægt að mynda ný nei- kvæð karlkynsorð virðist það ekki gert. Af þessu má draga þá ályktun að konur séu þrepi neðar í virðingarstiganum." Mér fannst þetta áhugavert mál og kannaði því bæði jákvæð orð og nei- kvæð um karla og konur í seðlasöfnum Orðabókar Háskólans. Athugun mín leiddi í Ijós að svipaður fjöldi jákvæðra heita fannst um karla og konur en tals- vert fleiri neikvæð orð eru notuð um karla, ekki sfður af þeim sjálfum en af konum. Mestur er munurinn þegar verið er að lýsa framkomu og hegðun. Mikill fjöldi orða ertil um grófa, ruddalega karlmenn, t.d. afhrak, afskúm, barri, bulla, drubbi, dusilmenni, frunti, hrani, rusti, skreppur, en ekki eru ruddafengn- um konum að sama skapi gefin sérstök heiti. Þær eru fremur fasmiklar og há- værar, t.d. fenja, freigáta, fruska, glumbra, hrímskella, skella, snegða, du væsKJ.11; ií=g?a»- najn-ur : . i -Trunfi; : -il-menni: -bfa; -dMri yzlmi : trei-gáta ■ -skella •-þredda ' hr5mlskel : h%t;§n-jála ■ -qiilribra : -sneg>a • syarK-ur ? -frusKn ysja. Allmörg orð fundust um skapharð- ar konur og geðillar, t.d. bredda, gípa, harðnjála, skerja, svarkur, en færri um geðstirða karla, t.d. drútur, hamur, lunti, rysjaldur. Gildvaxin kona á sér fleiri heiti en gildvaxinn karlmaður en aftur á móti eru mörg orð til um vesældarlegan karl- mann, væskil, en fá sambærileg um konur. Af þeim dæmum sem ég fann er fátt sem bendirtil að karlmenn noti grófari orð um konur en sjálfa sig. Orð um karla eru talsvert fleiri en orð um konur og ný neikvæð orð eru mynduð um karla ekki síður en um konur. Fátt virðist því benda til að konur standi að þessu leyti skör neðar en karlar í virð- ingarstiganum. HEILSA og HUGRÆKT fyrir konur -Leið til bættrar líðanar og heilbrigðis- í fyrsta hlutanum er fjallað um stefnur og strauma í hugþjálfun og ólík viðhorf fræðimanna og leikmanna. Farið verður þá í heildarsýn sem samþætting hugræktar og líkamsræktar veitir, markvissar aðferðir til eflingar hugans og nem- endur gera einstaklingsverkefni. Kennari: Gunnhildur Valdimarsdóttir hjúkrunarfræðingur og kennari Kennslustaður: Mjódd Verð: 6000 kr Skráning: stendur yfir að Fríkirkjuvegi Annar hluti inniheldur hópverkefni, slökun, megin inntak slökunar og aðferðir, kenningar fræðimanna og leikmanna. Þriðji og seinasti hluti fjallar um það að leyfa sér að upplifa og njóta lífshamingjunnar og hvernig það og slökun spilar saman. Námsflokkar Reykjavíkur Fríkikjuvegi 1 s. 551-2992 Þönglabakka 4 s. 567-7050 http://www.namsflokkar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.