Vera - 01.10.2001, Síða 12
Mér finnst...
■ Undir
" smásjá
Arnfríður Aðalsteinsdóttir
félagsfræðingur ó Húsavík
Mér finnst gott að búa úti á landi, á litlum
stað þar sem allir þekkja alla. Þegar ég fer
út í búð hitti ég fólk sem heilsar mér og
við gefum okkur gjarnan tíma fyrir smá spjall. Lftið
bros frá sundfélaga eða klapp á öxlina frá nágranna
getur bjargað deginum. Það er þessi vinátta og
væntumþykja sem mér þykir svo gott að finna -
okkur er ekki sama hverju um annað. En það getur
líka verið þrúgandi að búa þar sem allir þekkja alla -
og allir vita allt um alla. Þú ert f rauninni alltaf
undir smásjá, ferð ekkert og/eða gerir ekkert nema
allur bærinn viti það. En hvar erum við ekki undir
smásjá? Mig langar að segja ykkur frá litlu atviki
sem varð til þess að ég fór að velta því fyrir mér
hvort ég væri hvergi óhult fyrir vökulu auga stóra
bróður. Ekki alls fyrir löngu vantaði mig debet-
kortakvittun svo ég gæti stemmt af og sent bókhald
sem ég færi í endurskoðun. Debetkortafærslan var
hálfs árs gömul og með henni þurfti að fylgja kassa-
kvittun. Ég hringdi í öngum mínum í bankann og
bað um aðstoð og eins og venjulega var það lítið
mál. Nokkrum dögum seinna fékk ég báðar kvitt-
anirnar sendar ásamt útprentun þar sem fram kom
hvað hafði verið verslað út á kortið þennan dag.
Næst þegar ég átti erindi í umrædda verslun kom
verslunarstjórinn til mín og spurði hvort ég hefði
fengið sendinguna frá sér. Ég þakkaði honum kær-
lega fyrir og bætti við að það hefði komið mér á
óvart að fá úttektina sundurliðaða. Hann brosti og
bjargaði þar með deginum, sagði lítið mál að sækja
þessar upplýsingar í tölvuna og prenta út. |a hérna,
hugsaði ég með mér, er ekki tæknin ótrúleg. Þarna í
lítilli matvöruverslun úti á landi er með engri
fyrirhöfn hægt að komast að því hvað ég hafði í
matinn um miðjan janúar, hvað ég hef keypt mikið
sjampó á árinu og hvaða þvottaefni ég nota. Þökk
sé kortaviðskiptunum. En það eru ekki bara korta-
viðskiptin sem skilja eftir sig spor, ég á líka gemsa
og tölvu sem leggja sitt að mörkum í upplýsinga-
öfluninni. Gemsinn minn sendir frá sér upplýsingar
um hvar ég er stödd hverju sinni og við hvern ég
tala og ef ég fer inn á netið þá er það einnig sam-
viskusamlega skráð. Það er því ekkert smáræðis
magn upplýsinga sem tölvukerfin geyma um okkur.
Hvernig þessar upplýsingar koma til með að verða
nýttar í framtíðinni vitum við hins vegar ekki. |á það
getur verið þrúgandi að búa við nágrannaeftirlit í
litlu bæjarfélagi, en að hafa allt í kringum sig ósýni-
lega spæjara sem aldrei víkja af vaktinni finnst mér
öllu verra. Hefur öll þessi skráning upplýsinga virki-
lega ekkert með persónuvernd að gera?
Ég skora á Sigríði Elínu félagsfrœðing hjá Byggðastofnun á
Sauðárkróki að segja meiningu sína í næsta blaði.
Aukin ökuréttindi
ÖKU
?KOI,INN
I MJODD
Kennsla til allra ökuréttinda.
Bifhjólapróf og almennt ökupróf (B.réttindi).
Einnig kennsla fyrir ensku- og taílenskumælandi fólk!
Þarabakka 3
109 Reykjavík
Sími 567-0300
okusk.mjodd@simnet.is
Kennsla á leigu- vöru- og hópbifreið og vörubifreið með eftirvagn.
Hægt er að hefja nám alla miðvikudaga. (Áfangakerfi)
Endurbætt kennsluaðstaða. Reyndir kennarar og góðir kennslubílar.
Aukið við atvinnumöguleikana. Hringið eða komið og leitið upplýsinga