Vera - 01.10.2001, Page 30
Leila
bosnísk stúlfca
fietjusaga konu sem lifði af fielvíti á jörð
Flest viljum við ekki vita af því sem gerð-
ist í Bosníustríðinu árin 1992 til 1996.
Staðreyndirnar eru svo skelfilegar og nú
er stríðið búið. En þau sem vilja setja sig
í spor þeirra kvenna sem þurftu að upplifa
mesta helvíti sem hægt er að hugsa sér og
fá að vita fivernig þær komust í gegnum
það, ættu að lesa bókina Leilu sem For-
lagið gefur út i fjarskalega góðri þýðingu
Ingunnar Ásdísardóttur.
í sögu Leilu fáum við að kynnast mestu mannvonsku
sem hægt er að hugsa sér þegar hermenn mana hvern
annan upp í að misþyrma konum kynferðislega og
nota eigin getnaðarlim sem það skaðlega vopn sem
konur hafa engar varnir gegn. Það er varla hægt að
hugsa sér sterkari birtingarmynd hins varnarlausa
gagnvart þeim sem valdið hefur heldur en konurnar
sem hrúgað var saman í nauðgunarbúðir þar sem
mannleg niðurlæging átti sér engin takmörk. En í lífi
Leilu eru líka karlmenn sem sýna á sér góðar hliðar,
næstum andstæðuna við grimmd hinna. Samt eru
þeir líka serbneskir hermenn en þeir ákveða að halda
hlífiskildi yfir þessari grönnu, múslimsku stúlku og
hlú að henni sem best þeir geta. Örlagasaga Leilu er
saga þúsunda fórnarlamba stríðsins í fyrrum
lúgóslavíu, óskaplega dýrmæt heimild um svartasta
blett í sögu Evrópu síðustu áratuga. Það er ótrúlegt
hvað höfundurinn, þýska blaðakonan Alexandra
Cavelius, nær góðu sambandi við Leilu og hvað Leilu
tekst vel að lýsa þeim sálrænu þjáningum sem hún
gekk í gegnum. Bókin er þannig mjög merkileg heim-
ild um áhrif sálrænna áfalla á tilfinningalíf manneskj-
unnar. Spenna strfðstfmans verður líka einstaklega lif-
andi með því að brotum úr dagbók móður Leilu er
fléttað inn í frásögnina. Þessi bók er nauðsynleg lesn-
ing fyrir allar manneskjur sem vilja fá innsýn í þann
viðbjóð sem stríð getur leitt af sér. Sú vitneskja hlýtur
að gera okkur að meiri friðarsinnum og andstæðing-
um stríðsátaka hvar sem er í heiminum. EÞ
Fleiri bœkur um
konur og alkóhólisma
í þemaefni síðasta blaðs um konur og alkó-
hólisma var farið rangt með nafn Sölvínu
Konráðs og hún sögð Konráðsdóttir. Er hér
með beðist velvirðingar á því og einnig birtur
bókalisti frá Sölvínu um konur og alkóhól-
isma.
Fíkniefni og forvarnir
Handbók fyrir heimili og skóla. Ritstj. Árni Einarsson og
Guðni R. Björnsson. (2000 Fræðslumiðstöð í fíknivörnum).
Turnabout |ean Kirkpatrick. (1990 (4th.ed) Library of Congress
Cataloging-in-Publication Data).
Goodbye Hangovers Hello Life lean Kirkpatrick.
(1986 Library of Cataloging-in-Publication Data).
On the Road to Self Recovery
|ean Kirkpatrick. (1990 Women for Sobriety).
My Daughter's Life and Death Struggle with Alcoholism
Georg McGovern. Terry. (1997 A Plume Book).
A Biography of Mrs. Marty Mann
Sally & David Brown. (2000 Hazelden).
Rational Recovery - The New Cure for Subtance Addiction
Trimpey. (1996 A Pocket Books).
When Bad Things Happen to Good People
Kushner. (1981 Avon Books).
Alcohol and the Addictive Brain Blum (1991 The Free Press).
A Woman's Way through the Twelve Steps
Stephanie S. Covington. (1994 Hazelden).
Recovery: A Guide for Children of Alcoholics
Gravitz & Bowden. (1985 Fireside Pub. Books).
Children of the Healer - The Story of Dr. Bob's Kids
Windows. (1992 Parkside Pub. Corporation).
30