Vera - 01.10.2001, Blaðsíða 50

Vera - 01.10.2001, Blaðsíða 50
Konur vinna að heimsfriði Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna hafa á þessu ári starf- að í hálfa öld. Þann 10. desember árið 1951 stofnuðu islenskar hugsjónakonur samtökin í anda Alþjóðasambands lýðræðissinnaðra kvenna sem stofnað var í Paris árið 1945. Stofnendur þess voru konur frá 41 þjóðlandi sem allar höfðu verið í fangabúðum nasista í heimsstyrjöldinni siðari. Þær strengdu þess heit að ieggja sitt af mörkum til heimsfriðar ef þær slyppu lifandi úr fangabúðunum. Félagskonur úr MFÍK segja hér frá ýmsu því sem félagið hefur tekið sér fyrir hendur þessi 50 ár. Samstaða kvenna María Gunnarsdóttir, formaður Menningar- og friðarsamtaka íslenskra kvenna Á að fagna því að friðarsamtök hafi starfað í hálfa öld og að þörfin fyrir slík samtök virðist síst minni nú en áður? Hvaða gagn er að samtökum eins og MFIK? Er þetta ekki löngu úrelt fyrir- komulag að konur hittist til að ræða heimsmálin og það sem efst er á baugi hverju sinni? Til hvers er hópur kvenna að hafa skoðun á því hvað betur megi fara og koma ábendingum á framfæri við stjórnvöld og almenning? Jú, það er ennþá full þörf fyrir frjáls og óháð sjónarmið og allt frá árinu 1951 hafa Menningar- og friðarsamtök fslenskra kvenna látið sig varða ýmis málefni. Enn og áfram sameinumst við í baráttu fyrir: Almennum mannréttindum og jafnrétti. Réttindum og vernd barna. Alheimsfriði og afvopnun. Frelsi smáríkja gegn ágengni stórvelda. Hlutleysi íslands í hernaðar- átökum og að herstöðvar á íslandi verði lagðar niður. 50 Vinátta og samvinna kvenna í öllum löndum heims er okkur mjög hugleikin og í gegnum Alþjóðasamtök lýðræðissinnaðra kvenna og erlend systursamtök okkar fáum við upplýsingar um aðstæður kvenna í fjarlægum löndum. Oft er það önnur mynd en birtist í fréttum, þar sem oft á tíðum er talað um konur til að réttlæta hernaðarbrölt en í annan tíma þykir ekki áhugavert að vekja athygli á aðstæðum þeirra. Hvenær var t.d. talað um konur í Kúveit og hugsanlegar vonir þeirra um kosningarétt? Hvenær þykir fréttnæmt að tala um konur í Saudi-Arabíu og hvers vegna var lítið pláss í fjölmiðlum til að vekja athygli á því hvernig Talíbanar træðu á mannréttindum afganskra kvenna á þeim tíma sem Bandaríkin og fylginautar þeirra voru að styðja þá til valda? Árið 1997 töluðum við MFÍK konur um aðstæður afganskra kvenna á 8. mars fundi í Ráðhúsi Reykjavíkur en það var á móti straumnum að róa því Talíbanar voru þá ennþá liðsmenn Bandaríkjanna á móti Rússum. Þannig hefur hlutverk MFÍK oft verið. Við erum ekki hluti af hvítum og rfkum mannúðar-busi- ness. Við vorum á móti Persaflóastríði. Við tókum afstöðu gegn loftárásum á Serbíu. Nú erum við á móti árás á Afganistan. Við erum stoltar af því að hafa alltaf staðið með þeim fátæku og valdalausu í þessum heimi. Þeim fjölmörgu sem tekið hafa þátt f starfi samtakanna á liðnum árum sendi ég friðarkveðjur. Um leið býð ég velkomna til liðs við okkur alla sem vilja leggja sitt af mörkum til að stuðla að friði. Mannréttindi og friður er fyrir alla, alls staðar, en ekki bara fyrir suma, sums staðar. Sameinum krafta okkar svo alda friðar verði öllu yfirsterkari. Upplýsingar um félagið er að finna á heimasíðu MFÍK: http://www.ismennt.is/vefir/mfik
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.