Vera - 01.10.2001, Qupperneq 63
Sem stigamaður varð Phoolan Devi
hetja milljóna Indverja af lægstu
stéttum. Með rauðan klút og riffil ó
bakinu var hún tákn stéttabaráttu og
óréttlætis gegn konum.
Ótrúlegt lífshlaup
Phoolan Devi, sem fæddist inn í fjölskyldu af lægst
settu stétt í Uttar Pradesh, var seld f hjónaband ell-
efu ára gömul. Hún flúði ofbeldisfullan eiginmann-
inn og sneri heim í þorpið. Tvítug að aldri gekk hún
til liðs við útlagahóp og hrelldu þau Madhya
Pradesh f fjögur ár. Ástmaður hennar var drepinn af
hástéttarmönnum frá þorpinu Behmai sem rændu
henni, höfðu f haldi f þrjár vikur og nauðguðu henni
margoft. Hún náði að flýja frá þeim, stofnaði eigin
þófaflokk og einu og hálfu ári síðar, f feþrúar 1981,
sneri hún aftur í þorpið og drap, eða lét drepa 22
menn. Sjálf vildi hún aldrei viðurkenna að hún hefði
myrt nokkurn mann. Sem stigamaður varð Phoolan
Devi hetja milljóna Indverja af lægstu stéttum. Með
rauðan klút og riffil á bakinu var hún tákn stéttabar-
áttu og óréttlætis gegn konum. 'Saga hennar var
saga uppreisnar og vel heppnaðrar andspyrnu gegn
kúgun og arðráni', sagði forseti Indlands, KR Nara-
yanan, sem sjálfur er af lægstu stétt. Hún stóð gegn
fordómunum sem samfélagið notar gegn konum; fá-
tæktinni og útskúfuninni. Hún reis úr öskustónni til
þings á eigin verðleikum. Morðið var heigulslegur
skepnuskapur', bætti hann við. Phoolan Devi gaf sig
fram við yfirvöld 1983 og sat í fangelsi í ellefu ár en
þá var hún náðuð. Devi gekk þá í Samajwadi (sósf-
alista) stjórnmálaflokk sem hefur talsverð ítök í
norður Indlandi. Hún var kosin á þing 1996. Phoolan
Devi sat f neðri deild indverska þingsins, Lok Sabha.
Kjör hennar til þingmennsku var umdeilt, bæði
vegna fortfðar hennar og þess að hún var hvorki læs
né skrifandi.
Ýmsar kenningar á lofti
Samajwadi flokkurinn segir að morðið sé pólitískt
samsæri og bendir á að öryggisvarsla um Devi hefði
nýlega verið skorin niður og það hefði gefið morð-
ingjunum færi á henni. Flokkurinn er stærstur í
stjórnarandstöðu f Uttar Pradesh þar sem hinn ráð-
andi Hindúa flokkur sér fram á erfiðar kosningar.
Grunur leikur á að Phoolan Devi hafi ætlað að yfir-
gefa flokkinn eða hann viljað losna við hana til að
hreinsa fmynd sfna. Sá kvittur hefur komist á kreik
að meðlimir fjölskyldu hennar hefðu ástæðu til að
vilja hana feiga. Umed Singh, eiginmaðurinn eftirlif-
andi, á að hafa viljað skilnað. Devi efnaðist mjög á
ævisögu sinni og kvikmyndaréttinum að 'Ræningja-
drottningunni'. Ekki er ljóst hvort hún var löglega
skilin við fyrsta eiginmann sinn af þremur og því
erfðamálin nokkuð flókin. Aðrar halda þvf fram að
fortíð Phoolan Devi hafi orðið henni að fjörtjóni og
að ættingjar karlanna sem hún drap hafi komið
fram hefndum.
Maður í haldi lögreglu fyrir morðið
Sher Singh Rana, háskólastúdent, hefur játað að
hafa skotið Devi til bana. Hann segist hafa drepið
hana sem hefnd fyrir morðið á þeim 22 mönnum
sem hún hefur verið ásökuð um að hafa drepið fyrir
tveimur áratugum. Með því að drepa Phoolan Devi
segist hann einnig hafa vonast til að ná fótfestu í
pólitísku landslagi heimahéraðs síns. Hann segist
hafa, ásamt Ravinder atvinnulausum frænda sínum,
skotið sex kúlum í lfkama Phoolan. Hinsvegar hefur
Rana orðið margsaga um flest atriði og voru nokkrir
menn handteknir taldir hafa tekið þátt f undirbún-
ingi og framkvæmd ódæðisins. Sher Singh Rana
bíður dóms.
Kvikmyndin
Phoolan Devi líkaði ekki við þá mynd sem 'Ræn-
ingjadrottningin' gaf af henni og sagðist ekki kæra
sig um að fólk áliti að hún hefði alltaf verið hálf-
grenjandi. Henni tókst að láta banna sýningar á
myndinni í Indlandi. Myndin fæst á myndbandaleig-
um en er ekki fyrir viðkvæmar (nauðganir og dráp).
Ræningjadrottningin (Bandit Queen) Gerð 1994
Leikstjóri: Shekhar Kapur Tónlist: Nusrat Fateh Ali
Khan Aðalhlutverk: Seema Biswas og Nirmal Pandey
Heimildir: timesofindia.com mbl.is giiardian.co.uk
panindia.com tfieatlantic.com