Vera - 01.10.2001, Side 64

Vera - 01.10.2001, Side 64
Alþingisvaktin ■ umsjón: martha árnadóttir Spjallið að þessu sinni er við þingkonuna, sjálfstæðis- konuna og bóndann Drífu Hjartardóttur. Þó yfirstand- andi kjörtímabil sé fysta kjörtímabil Drífu sem kjörins þingmanns er varla hægt að segja að hún sé nýliði á þingi. Á kjörtímabilinu 1995 til 1999 kom Drífa alls sjö sinnum inn á þing sem varaþingmaður og tók þá sæti í ótal nefndum - „flest öllum nema utanríkisnefnd," segir Drífa. Skapið „Það er voðalega fátt sem kemur mér í vont skap nema helst málþóf í þinginu um ómerkileg málefni." Drífa færst ekki til að nefna dæmi en kemur því að að þingheim- ur mætti tala meira um málefni barna og fjölskyldunnar en gert er. Þarf að bæta hag bænda En hvað kom Drífu mest á óvart þegar hún kom í fyrsta sinn inn á þing? „|a,"segir Drífa „ég verð nú bara að viðurkenna að það var hvað þingsalurinn var lítill og öll vinnu- aðstaða þingmanna léleg þó hún hafi bat- nað til muna síðan þá. Við buðum Drífu ráðherraembætti og hún þurfti aðeins að hugsa sig um áður en hún sagði: „laaá," frekar dræmt og að sennilega yrði land- búnaðarráðuneytið fyrir valinu. „En ég get ekki sagt þér hvað yrði mitt fyrsta verk þar á bæ," segir hún og hlær innilega. „En að öllu gamni slepptu þá myndi ég vilja sjá hag bænda miklu betri. Það er alltof mikil fátækt til sveita og vont að horfa upp á að fólk á erfitt með að koma börnunum sfnum í skóla og hefur varla til hnffs og skeiðar. Bændur þurfa að fá mun meira fyrir afurðir sfnar," segir Drífa. Heima er best Við spurðum Drffu um sumarið og fríið frá þingstörfunum. „Ég er náttúrulega bóndi og þegar ég er heima á Keldum þá er meira en nóg að gera. Við erum með á þriðja hundrað fjár og 30 mjólkandi kýr auk naut- gripaeldis," segir Drífa með ákafa. Dekurþjóðin Drffa var um borð f breiðþotu á leið til Afríku þegar hryðjuverkaárásin var gerð á Bandaríkin. Nánar tiltekið var hún á leið til Burkina Faso á fund alþjóðlegu þing- mannanefndarinnar. „Burkina Faso er þrið- ja fátækasta ríki í heimi. Þar eru Iftil sem engin verðmæti í jörðu og landið mest eyðimörk. En fólkið er yndislegt, snillingar við allt handverk, svo fallegt að af ber, hávaxið og tígulegt í hreyfingum," segir Drífa með aðdáun í svipnum og heldur áfram að velta fyrir sér aðstæðum íbúa Burkina Faso. Hún kemst svo að þeirri niðurstöðu að á íslandi búi dekurþjóð sem allt á og lifi ótrúlega áreynslulaust. Bíóið og bókin f þotunni horfði Drffa á myndina Saturdaynight Fever - „yndisleg mynd og gaman að sjá hana aftur," segir hún. „Ég er alltaf með nokkrar bækur á nát- tborðinu, bæði ljóðabækur og sögubækur - núna er ég nýbúin að lesa bók eftir loanna Trollope, breskan rithöfund sem skrifar mjög mannlegar bækur," segir Drífa og ein- sog hverfur inn í söguna. Mig hefur hannað... „í dag, þegar þessi orð eru sögð, er ég á leið til þingsetningar. Það ertilhlökk- unarefni að hefja vetrarstarfið með öllu sem því fylgir. Ég leiði hugann að deginum í gær þegar ég var viðstödd útgáfu Ijóða- bókar sem er gefin út í tilefni níutíu ára afmælis Oddnýjar Kristjánsdóttur. Bókin ber nafnið Best eru kvöldin. Lítum á eitt ljóðanna í bókinni," sagði Drífa að lokum. Mig hefur hannað Mig hefur hannað þessi þjóð í þúsund ára bjástri hér eflt mig við að yrkja Ijóð og að vinna það sem ber. Þig að elska endalaust yndislega landið mitt vetur, sumar, vor og haust verð ég alltaf barnið þitt. Upplýstar á vefnum! Við höldum áfram að skoða vefsíður þingkvenna. I þetta sinn lítum við inn hjá Rannveigu Guðmundsdóttur samfylkingarkonu og sjáum hvað þar er að finna. Rannveig - falleg og hlýleg Á forsíðunni býður Rannveig gesti velkomna á vefinn. Hún situr í stól með hendur undir kinn og virðist afslöppuð eins og reyndum gestgjafa sæmir. Viðmótið á forsfðunni gerir það að verkum að mann langar að kíkja f heimsókn til Rannveigar, svo við höldum áfram inn á vefinn. Liturinn sem blasir við er rauður og minnir óneitanlega á 18 rauðar rósir Alþýðufiokksins, þótt flestar séu þær fölnaðar og fallnar. Rannveig er þingmaður Reyknesinga og á vefnum er að finna fallega loftmynd úr kjördæminu. Æviágrip þingkonunnar er á sínum stað og einnig má finna ýmsar tengingar á aðra vefi en þær eru ef til vill ekki mjög frum- legar eða spennandi. Rannveig hvetur fólk til að hafa samband, og láta í sér heyra ef því liggur eitthvað á hjarta. Ósjálfrátt kemur sagan um Auði Auðuns, fyrsta kvenráðherrann á íslandi, upp í hugann. Þessi saga segir frá því að Auður hefði alltaf haft litla vasabók við höndina þegar hún talaði við fólk sem leitaði til hennar í vandræðum sínum. Segir sagan að Auður hafi nóterað erindið í vasabókina og síðan átti hún að hafa sagt þegar hún kvaddi viðkomandi: „Núna er þetta allt saman komið inn í litlu rauðu bókina mina og þá fer nú að rætast úr hjá þér." Erindrekar fóru frá Auði fullir trúnaðartrausts og sagan segir að oftar en ekki hafi ræst úr málum fólks þo Auður hafi e.t.v. hvergi komið þar nærri. Þetta var nú sma útúrdúr - en vefurinn hennar Rannveigar er fallegur og hlýlegur, þar sem ímynd trausts stjórnmálamanns er tekin framyfir nýjungagirni og glamúr. Slóðin er www.discovery.mmedia.is/jes

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.