Vera - 01.08.2004, Qupperneq 13
/ KYNNING
STÍLL í nýju húsnæði
» Kvenfataverslunin STÍLL hefur öðlast fastan sess í hugum margra kvenna sem hafa fundið þar föt
sem hæfa þeirra stíl. Eigandi verslunarinnar, Guðný Kristín Erlingsdóttir vill reka verslun sína við
Laugaveginn því henni finnst það svæði hafa annan og meiri sjarma en stórar verslunarmiðstöðvar.
Verslunin STÍLL flutti nýlega í nýtt húsnæði að Laugavegi 58, þar sem verslunin Drangey var til húsa
um árabil.
ST(LL er tæplega 20 ára gömul kvenfataverslun en Guðný eignaðist
hana árið 2000. Hún hafði þá kynnst verslunarrekstri vel sem
fjármálastjóri. „Eftir að ég lauk námi í viðskiptafræðum við Hí 1988
hef ég unnið sem fjármálastjóri ( fyrirtækjum tengdum
verslunarrekstri. Mér fannst ég því þekkja þennan heim vel þegar ég
ákvað að hella mér út í eigin rekstur," segir Guðný og bætir við að
Laugavegurinn hafi lengi verið sinn starfsvettvangur og þar vilji hún
áfram starfa.
„Það er mikið af góðum kvenfataverslunum við Laugaveginn og
þær styðja hver aðra. Borgaryfirvöld mættu hins vegar sýna
verslunarrekstri í miðbænum meiri stuðning. Það er svo mikilvægt að
hér sé blómleg verslun. Þetta hefur gengið í bylgjum en mér finnst
vera uppgangur á Laugaveginum núna. Sífellt fleira fólk hefur lært að
meta kosti þess að ganga um svæðið. Fólk verður að læra að leggja
bílunum í hliðargötur og ganga. Það geta ekki allir fengið bílastæði
beint fyrir utan áfangastað sinn."
Vandaður þýskur fatnaður
Guðný segir að frá upphafi hafi STÍLL flutt inn og selt buxur frá þýska
fyrirtækinu BRAX, jafnt galla- og flauelsbuxur sem fínar svartar buxur.
Annað þýskt merki sem verslunin hefur haft frá upphafi er BLACKY
DRESS, Berlin. „Þetta merki hefur kvenlegar línur en númerin eru þýsk
og henta íslenskum konum vel. Þetta er alhliða fatnaður eins og
dragtir, blússur, pils og kjólar og nú erum við með talsvert af
rúskinnsfatnaði frá þeim. Jean paul er annað merki, frönsk hönnun
með sportlegri línu, svakallaður götufatnaður og er einnig mjög
vinsæll. Við flytjum inn yfirhafnir frá hollenska fyrirtækinu DAMO og
erum með úrval af tweed kápum fyrir veturinn og einnig fallegar slár,
eða ponsjó. Nýlega tókum við svo við umboði fyrir HUGO frá Hugo
Boss en í þeirri línu er alls kyns kvenfatnaður, allt frá vettlingum upp
í dragtir og kápur. Einnig má nefna að við seljum skó, veski, belti og
fatnað frá danska fyrirtækinu Philosophy Blues Original.
Harmonikkuleikur á góðum sumardegi
Guðný segir að mikið af föstum viðskiptavinum komi reglulega í
búðina og stöðugt bætist nýir við. „Það er algengt að konur vilji halda
sig við sama framleiðanda þegar þær hafa fundið föt sem þeim finnst
passa við sinn karakter," segir Guðný og bætir við að á sumrin sé oft
fjör í búðinni, eins og á Laugaveginum almennt. „Ég er að læra á
harmonikku og við spilum oft fjögur saman, tvær konur og tveir
karlar. Það laðar að þegar eitthvað er um að vera og fólki finnst
gaman að koma í bæinn og fylgjast með lífinu," segir Guðný að
lokum.
vera / 4. tbl. / 2003 / 1