Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2004, Blaðsíða 28
I
28 LAUOARDAOUR 7. FEBRÚAR 2004
Fókus DV
Menn eins og Ólafur Jóhannsson vaxa ekki á trjám. Ólafur er nefnilega vinur ísraels. Hann hefur dvalið í lar
fer fyrir samtökum sem kalla sig Zion - Vini ísraels. Hann þekkir aðstæðurnar betur en margir aðrir og er e
um gang mála. Ólafur á marga vini meðal araba og gyðinga en er vonlítill um að varanlegur friður geti komli
- ekki síst hér á landi.
„Ég hef dvalið mikið í Israel sfðust
25 árin - yfirleitt frá maí til septem-
ber - þar sem ég hef starfað sem leið-
sögumaður. Svo er ég formaður fé-
lagsins Zion, sem stofnað var fyrir
rúmum áratug. I fyrstu vorum við 12
en erum nú á fímmta hundrað félag-
ar," segir Israelsvinurinn Ólafur Jó-
' hannsson, sem er auk þess með viku-
legan sjónvarpsþátt, Israel í dag, á
sjónvarpsstöðinni Omega.
Fjölmiðlar segja ekki satt
„Þótt við séum vinir ísraels þýðir
það ekki að séum óvinir annarra og
við réttlætum ekki allt sem á sér stað
í ísrael. Það er ekki okkar boðskapur.
Við erum kristnir Israelsvinir og trú-
um því að þetta sé fyrirheitna landið.
Við trúum á Guð og að Ilann gangi
ekki á bak orða sinna - Hann gaf þjóð
sinni landið til eilífrar eignar og við
trúum því að fyrirheitið eigi eftir að
rætast," segir Ólafur en félagið hefur
líka stutt Skóla vonarinnar í Beit-Jala.
Um er að ræða kristinn skóla sem
■*> mjög fátæk palestínsk ungmenni
sækja.
Ólafi finnst að í umfjöllun fjöl-
miðla hér á landi og víðar halli nokk-
uð á gyðinga og fréttirnar sýni ekki
sannleikann.
„Það særir mig oft að lesa fréttir af
svokölluðum Palestínuvinum og frá-
sagnir þeirra. Þeir leggja áherslu á
grimmd Israels og hersins og mynd-
irnar sem við sjáum eru oftast af grát-
andi arababörnum sem hafa misst
foreldra sína. Þetta er mjög sterkt og
áhrifamikið að sjá, en aldrei er talað
um af hverju foreldrar barnanna hafi
fallið. Þess vegna er félagið Zion til og
við viljum m.a. vekja athygli á hvers
vegna ástandið er svona. Fjölmiðlar
leggja t.d. enga áherslu á þann mikla
íjölda araba sem býr á Gaza en vinn-
ur I ísrael. Með því eru ísraelsmenn
að veita þeim lifibrauð, en svo um
leið og óeirðir verða og landamærun-
um er lokað, segja fjölmiðlar frá því
að arabar komist ekki til vinnu vegna
illsku ísraelsmanna. Hér á landi var
heldur ekkert greint frá því þegar upp
komst um stuld Arafats á miklum
fjármunum sem hann lagði inn á
bankareikning sinn í Sviss og konu
sinnar í Frakklandi. Þetta var á for-
síðum blaða alls staðar nema hér."
Kóraninn hvetur til drápa
Ólafur telur rót hins illa, sem veld-
ur deilunum, liggja í andlegum mál-
efnum - íslam. Hann leggur þó
áherslu á að hann sé vinur margra
araba og að múslímar séu ekki allir
illir. Illskan sé í íslamstrúnni og þetta
segir Ólafur augljóst þegar Kóraninn
er lesinn.
„Israel er mjög lítið land, u.þ.b. 20
ferkílómetrar, og umkringt 20 stór-
veldum sem öll eru múslímaríki með
samtals um 200 milljónir íbúa. fsrael
er eins og lítið krabbamein í þjóðfé-
lagi araba, sem þeir vilja eyða. I Kór-
aninum er múslímum bannað að
gera sér vini meðal kristinna manna
og gyðinga. Þetta getur fólk lesið í
Kóraninum og þar eru múslímar
raunar hvattir til að drepa gyðinga.
Kóraninn boðar hatur og dráp en
þrátt fyrir það finnast jafnvel íslensk-
ir prestar sem segja Allah og Guð
Biblíunnar vera þá sömu. Biblían
boðar aftur á móti að Guð elski alla
*- menn," segir Ólafur og bendir einnig
á að arabarnir hafi alla burði til að
•nxiíoir
'ræöi. En
í/r ekki að
leysa vandann sem skapast hefur
vegna flóttamannabúðanna. Það er
þó ekki gert vegna áróðursgildis.
„Þessar flóttamannabúðir eru
ekki í Israel heldur á landsvæðum
araba og auðvelt væri að leysa vand-
ann með því að koma þessu fólki t.d.
fyrir í Jórdaníu. Það vilja arabarnir
hins vegar ekki gera vegna áróðurs-
gildis búðanna - flóttamenn eru á
fimmtu milljón í dag og aðstæður þar
eru skelfilegar," segir Ólafur, sem fer
reglulega með hópa í leiðangra að
flóttamannabúðunum.
Vaxandi gyðingahatur
Gyðingahatur fer vaxandi, að mati
Ólafs, og hann telur það ekki bara
eiga sér pólitískar rætur heldur fyrst
og fremst andlegar.
„Gyðingahatur hefur alltaf verið
til en það er mín sannfæring að kirkj-
an eigi hlut að máli. Hinir fyrstu kaþ-
ólsku biskupar meinuðu gyðingum
að taka þátt í guðsþjónustum - af því
að þeir drápu Jesú. Lúther skrifaði
líka á sínum síðari árum bækur gegn
gyðingum - þeir voru undir bölvun
fyrir að drepa Jesú. Þessi kenning lif-
ir enn í kirkjunni og ég man bara þeg-
ar ég var í sunnudagaskóla sem
drengur að okkur var sagt að muna
að það voru gyðingar sem drápu
Jesú," segir Ólafur og bendir á orð
Göbbels, áróðursmeistara Hitlers,
máli sínu til stuðnings. „Þegar ein-
hver gerðist svo djarfur að spyrja
Göbbel hví nasistar legðu svo mikla
áherslu á að drepa gyðinga, svaraði
hann að þeir hefðu ekki gert annað
en kirkjufeðurnir boðuðu."
Múrinn verndar fsrael frá
hryðjuverkamönnum
Þegar hann er spurður út í hvað
honum þyki um múrinn umdeilda,
sem verið er að reisa utan um ísraels-
ríki, segir hann að liann sé slæmur.
Iiann vonast til þess að hægt verði að
losna við hann í framtíðinni.
„Múrinn er mjög umtalaður, af
eðlilegum ástæðum. Mér finnst að
hann ætti ekki að vera til staðar -
hann er ljótur og skemmir landslagið
og þvf finnst mér sem leiðsögumanni
leiðinlegt að hafa hann. Nú síðast
hafa margir tekið að kalla þennan
múr Arafatsmúrinn í stað þess að
kenna hann við Sharon, enda er
hann byggður til að vernda litla Isra-
el frá Arafat og hryðjuverkamönnum.
Árásum hefur þó fækkað eftir að
múrinn var settur upp," segir Ólafur,
sem vonar að ástandið í Israel eigi
eftir að batna þegar Arafat fer frá.
„Arabar eru hræddir við Arafat og
hans samtök. Þeir sem gefa sér tíma
til að kynna sér ævi Arafats sjá að spor
hans eru blóðug. Hann hefur verið í
Jórdaníu þar sem hann ætlaði að taka
völdin ásamt PLO, hann var rekinn
þaðan en fór þá til Líbanon. Þar gerði
hann allt vitlaust og var rekinn burt
en fór þess í stað til Túnis. Arafat er
tákn hins illa og hann hefur víða
skapað vandræði. En það þýðir ekki
að við eigum að hætta að biðja fyrir
honum," segir Ólafur og bætir við að
samtök eins og Hamas hafi sagt að
þau vilji aldrei semja frið við Israel.
Hann er þvf vonlítill um að varanleg-
„í Kóraninum er
múslímum bannað að
gera sér vini meðal
kristinna manna og
gyðinga. Þetta getur
fólk lesið í Kóraninum
og þar eru múslímar
raunar hvattir til að
drepa gyðinga. Kór-
aninn boðar hatur og
dráp."
ur friður geti komist á en á þó von á
að hægt verði að bæta ástandið til
muna og koma á vopnahléi.
„Friðurinn kemst aldrei á með
lagasetningu; hann byrjar í hjarta
»
'i
>1!
I