Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2004, Page 12
12 LAUGARDAGUR 29.MAÍ2004
Helgarblað DV
Raul Rodrigues er með MA próf í stjórnmálafræði, er módel og
hefur starfað sem einkaþjálfari ffæga fólksins. Nú einbeitir hann
sér að mexíkóskri matargerð og uppeldi tveggja sona sinna. DV
leit inn á Mamas Tacos síðla kvölds og spjallaði við Raul um póli-
tíkina, ástina og hinar kvenlegu hliðar Sólveigar Pétursdóttur.
„Ég kom hingað til íslands fyrir tíu
árum,“ segir Raul, „hitti íslenska
stúlku sem bjó í Chicago. Ári seinna
eignuðumst við barn og við fluttum
til íslands. í mínu tilviki var það frek-
ar til að vera með syninum sem ég
vildi kynnast og þekkja heldur en
stúlkunni sem ég þekktí h'tíð.
Skömmu síðar hitti ég aðra frábæra
stúlku sem ég var með í átta ár. Við
eignuðumst barn sem er nú andlit
matsölustaðarins. “
Misnotað vald
Tahð færist ffá samböndmn til
þess sem kannski skiptir ekki eins
miklu máh; póhtíkinni. „Þegar ég
kom hingað fyrst var munurinn á
bandarískri pólitík og íslenskri mjög
mikih,“ segir Raul. „Nú hefur bihð
minnkað enda virðast íslenskir ráða-
menn lepja upp flest sem kemur frá
Bush og hans ríkisstjórn."
Raul segir aðferðafræðina einnig
hafa breyst. Það sé meira skítkast
meðal íslenskra stjómmálamanna og
aukin harka. „f Bandarfkjunum er
þetta kaUað Mud Slinging eða leðju-
slagur," segir Raul. „Þetta sástu ekki á
íslandi fyrir tíu ámm. Þá bám stjóm-
málamenn meiri virðingu hvor fyrir
öðmm."
Það er stutt síðan fjölmiðlalögin
umdeildu vom samþykkt á Alþingi og
erfitt er að ræða um póUtík án þess að
spyrja Raul út í afstöðu sinnar til
þeirra. „Ég held að öU umræðan í
tengslum við fjölmiðlafrumvarpið hafi
orðið mjög tUHnningaþrungin," segir
Raul. „Að mínu matí snýst þetta ein-
faldlega um það að ráðamennimir em
að misnota valdið sem þeim er geUð.
Það verður að vera ákveðið jafnvægi í
samfélaginu - checks and balances."
Sem dæmi um þetta tekur Raul
Bandaríkin sem dæmi. „Þar er forset-
inn einnig að misnota valdið sem
honum er gefið. Það er samt í raun
ekki vandamáUð. VandamáUð er að
honum er gefið þetta vald upp í
hendurnar og því eðUlegt að hann
misnotí það.“
Aðför að innflytjendum
SkyncUlega verður Raul myrkur í
máh. Hann minnist á útlendingalögin
IRO RAÐGREIÐSLUR
OPNUNARTILBOÐ
SVEFNSÓFAR - SÓFASETT - HÆGINDASTÓLAR
^Leather
cTWASTEICj
SETT ehf. • Hlfðasmára 14 • 201 Kópavogur • Simi: 824 1010
Opnunartími:
Föstudag: 14:00 -17:00
Laugardag: 11:00 -17:00
VORUM AÐ OPNA NÝJA LAGERVERSLUNIHLÍÐASMÁRANUM
Nóg að gera í vinn-
unni. Raul rekurtvo
Mamas Tacos staði á Is-
landi. Einn i miðbænum
og annan uppi á velli.
Raul Rodrigues,
eigandi Mamas
Tacos Lógó staðarins
sem sést á bol Rauls er
andlit sonar hans
sem eru að hans mati gróf aðför að
innflytjendum. „Það er fyndið að hér
á íslandi tala menn eins og það sé
enginn rasismi eða mismunun," segir
Raul. „Samt eru lög samþykkt á Al-
þingi sem banna innflytjendum að
giftast fyrir 24 ára aldur." Raul tekur
afttu Bandaríkin sem dæmi. Segir
sömu hlutí vera í gangi þar.
„Mér finnst oft fyndið þegar fólk
segir við mig hvað Bandaríldn séu fr á-
bær,“ segir Raul. „Bandaríkin eru
hins vegar alveg jafn góð og þú vilt að
þau séu. Að mínu matí er hið fjöl-
menningarlega samfélag það sem er
heiUandi við Bandaríkin. Þegar það
samfélag er misnotað erum við samt
á rangri braut. Líttu bara á hverjir
berjast í írak og Afganistan. Það eru
menn eins og ég; fóUc af spænskum
uppruna eða afrískum - Íangflestir
innflytjendur. Það er því kaldhæðnis-
legt að Bandaríkjastjóm skuh setja
lög sem hindra sama fóUdð ffá land-
inu og er að vinna skítverkin fyrir rík-
isstjómina og ótrúlegt að fslendingar
skuJi feta sömu braut.“
Á þessu stigi em umræðurnar
kannski komnar á hálan ís. Raul segir
að hann gætí talað endalaust um
póUtík og lög um útlendinga. En hon-
um er fleira til Usta lagt. Hefur starfað
lengi sem einkaþjálfari í World Class
og komist í kynni við ýmsa þjóð-
þekkta einstaklínga.
Mýkri hliðar Sólveigar
„Já, ég þjálfaði Eið Smára á sínum
tíma,“ segir Raul. „Þegar hann lenti í
meiðslum. Svo þjálfaði ég einnig Sól-
veigu Pétursdóttur, dómsmálaráð-
herra, fyrir síðustu kosningar og
reyndi að gefa henni góð ráð.“ Raul
segir að vandamáUð við Sólveigu sé
að hún reyni of mikið að vera eins og
karlarnir á Alþingi. „Ég sagði henni að
hún ætti að virkja konuna í sér.
Þannig myndu aðrar konur horfa til
hennar sem fuUtrúa."
Raul segir að afstaða Sólveigar til
glæpa sé oft á tíðum of hörð. „Sem
póUtíkus verður þú að hafa mjúkar
hUðar. Eins og Rudolph GuUani. Hann
var „nobody" þangað til hann sýndi á
sér samúðarfuUa hUð - þá töluðu
menn um hann sem efni í forseta
Bandaríkjanna." Aðspurður um hvort
Sólveig hafi verið stressuð fýrir síðustu
kosningar segfr Raul svo ekki vera. „Ég
fann hfris vegar fyrir núklum von-
brigðum eftirá enda fékk Framsókn
skeU.“
simon@dv.is
DJ Sasha hafði þegar fengið borgað fyrir tónleikana á Nasa
Sviknir tónleikagestir
fá ekki endurgreitt
Mörg hundruð manns sem
borguðu sig inn á tónleika á
skemmtistaðnum NASA á miðviku-
dagskvöldið í síðustu viku fá ekki
endurgreitt, þrátt fyrir að plötu-
snúðurinn DJ Sasha frá Bretlandi
hafi ekki mætt, eins og auglýst var.
Sasha hafði fengið borgað fyrir
fram fyrir að halda hér tónleika.
„Samningarnir eru þannig að ef
maður borgar ekki fyrirfram skuld-
binda þeir sig ekki til að mæta,“
segir Grétar Gunnarsson, annar að-
standenda hinna meintu tónleika.
Grétar segist ekki geta endurgreitt
þeim sem áttu miða, því DJ Sasha
vill ekki endurgreiða þeim. „Þeir
vilja ekki endurgreiða okkur eigin-
lega. Svona er þetta, þetta er mjög
erfiður bransi, maður fær ekki allt
sem maður vill," segir hann.
Margir þeir sem keyptu miða á
tónleikana eru æfir vegna þess að
þeir fá ekki endurgreiddar þær
2500 til 3000 krónur sem þeir borg-
uðu fyrir að heyra tónlist Sasha.
Ekki varð ljóst fyrr en á aðfaranótt
fimmtudags að Sasha myndi ekki
mæta, þegar um 400 manns höfðu
beðið eftir honum á staðnum um
kvöldið. Þá steig breskur maður á
svið á Nasa og var fagnað ógurlega,
þar sem talið var að hann myndi
tilkynna innkomu DJ Sasha. En
Sasha hafði misst af flugi frá
Amsterdam, samkvæmt því sem
sagt var.
„Umboðsskrifstofan vill að
hann komi hér seinna og haldi tón-
leika," segir Grétar. „Við höfum
boðið fólki að nýta miðana þá eða
mæta á John Bigweed 16. júní. DJ
Sasha er náttúrulega mjög, mjög
bókaður í allt sumar og út nóvem-
ber. Ég veit ekki hvað við gerum ef
hann kemur ekki yfirhöfuð. Þau
segja þarna úti að kannski verði
hægt að koma honum hingað í
sumar. En hann er alltaf á þeytingi,
hann býr í Flórída, dvelst mikið í
London og ferðast mikið í Asíu,“
segir Grétar.
jontrausti@idv.is
DJ Sasha Breski plötusnúðurinn neitar
að endurgreiða skipuleggjendum tón-
leika hans á Nasa, þrátt fyrir að hann
hafi ekki mætt á tónleikana. Tónleika-
gestir sátu eftir með sárt ennið.