Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1878, Blaðsíða 30
Reykjavíkur sókn, Kjósar sýslu og Garðaprestakalli á
Alptanesi.
Marts 21. Maanús Jónsson prestur að Skorastað skipaður
prestur að Grenjaðarstað og Þverá.
— s. d. Amtmennimir og forstöðumaður prestaskólans
hækkaðir i metorðaröðinni og settir í 2. flokk Nr. 12,
og 4. flokk Nr. 5.
— s. d. Sameinað um 3 ár Þíngmúli við Hallormstað, og
Hof og Spákonufell við Höskuldstaði.
— 22. Póstskipið Arcturus kom í fyrstu ferð til Reykja-
vikur (fór aptur af stað 29. Marts).
— 23. Boðunarbréf frá sira Þórarni Böðvarssyni i Görðum
og Jóni Sigurðssyni á Gautlöndum um aimennan fund
á Þíngvöllum, 27. Juni, til að ræða um árángurinn af
ráðstöfunum um fjárkláðann, og úrræði gegn honum
(síðan færður fundurinn til 2. Juli).
— 24. Landshöfðingi skýrir amtmönnunum frá áætluðum
ferðum gufuskipsins Díönu kringum strendur íslands.
— s. d. Verðlagsskrá í Mýra, Snæfellsness og Hnappadals
og Dala sýslum frá miöju Maimánaðar 1876 tii jafn-
lengdar 1877; meðalverð allra raeðalverða hundr. 73 kr.
25 a., alin 61 eyrir.
— s. d. Verðlagsskrá i Barðastrandar og Stranda sýslum frá
iniðju Maimánaðar 1876 til jafnlengdar 1877; meðalverð
allra meðalverða 71 ,króna 20 aur., alin,59 aur.
— s. d. Verðlagsskrá í ísatjarðar sýslu og ísafjarðar kaup-
stað frá miðju Maimánaðar 1876 til sama tfma 1877;
meðalverð allra meðalverða 75 kr. 76 aur., alin 63 a.
— s. d. Landshöfðíngi skiptir, eptir tillögum amtmanns í
vesturamtinu, 148 krónum til verðlauna fyrir dugnað í
landbúnaði, hlaut Indriði Gfslason á Hvoli 50 kr., Kári
Konráðsson í Hraunsfirði 48 kr. og Björn Gíslason á
Brúarhrauni 30 krónur.
— s. d. Tomboia eða hlutavelta höfð á Akureyri og tveir
sjónarleikir um kvöldið. Agóðinn gekk til fyrirhngaðs
kvennaskóla (26. Marts leikiö í annað sinn í Eyjafirði).
— 23. Ráðgjafinn fyrir Island setur reglur um, hvernig prest-
ar skuli fara að til að fá lausn frá embætti héreptir.
— 28. Landshöfðíngi veitir: Svalbarð í Þistilfirði Guttormi
Vigfússyni, kapelláni að Saurbæ, Reynisþíng í Mýrdal
sira Brynjólfi Jonssyni í Meðallandsþfngum, Bergstaði í
Svartárdal Stefáni Jónssyni (Eiríkssonar).
— 30. Lög fyrir sparisjóð á Akureyri (20 hlutabréf, hvert
a 100 krónur).
— 31. Fundur á Herríðarhóli, rædt um fjárkláðann, veiði
og heimagæzlu fjárins.
— s. d. Hrognkelsa afli mikill á Akranesi.
— Seinast í Marts sýnist setn barkskipið Emma Arvigne
hafi farizt með öllu í ísnum fyrir norðan land.