Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1878, Blaðsíða 40
Septemher 9. Fundur hins eyfirzka ábyrgðaríélags.
— s. d. SíraPáll Einarsson Sivertsen í0gurþíngumnefndur
til prests í Aðalvík með 400 króna uppbót. Hann skal
og þjóna Stað i Grunnavtk.
— 12. og þarumbil. Markaðir fyrir fé í Austfjörðum.
— s. d. Auglýsíng frá stjórnarráðinu fyrir Island um, að
bann það, sem með auglýsíng 9. Juni 1876 var lagt á
að flytja hunda frá Danmörk til Islands, sé af numið.
— s. d. Skýrsla um Gránufélagið við árslok 1875: félags-
hlutir 1465 á 50 krónur, fjárauki frá byrjun félagsins
43,885 kr. 81 eyrir.
— 13. Strandaskipið Diana kom á Akureyri með fjölda
farníngarmanna; fór af stað aptur 16. Septbr.
— 14. Andaðist stúdent Benedikt Bogason Benediktsen,
fyrrum rúðumeistari í Kaupmannahöfn, (fæddur 1798,
utskrifaður úr Bessastaða skóla 1818).
■— ^5. Vegagjörð yfir Svínahraun seld fyrir uppboðsverð
Eiríki Asmundssyni í Grjóta fyrir 4 kr. 70 a. faðm.
— 17. Andaðist frú Kristín Ingvarsdóttir, ekkja eptir Eirík
sýslumann Sverrisson (fædd 21. Oktbr. 1790).
— Tombóla á Akureyri haldin fyrir forgöngu kvenna. A-
góðinn varð 316 krónur 1 eyrir, og skyldi kaupa fyrir
altarisklæði handa kirkjunni.
— 19. Prentsmiðjunefndin á Akureyri skorar á hlutabréfa
eigendur í nýju prentsmiðjunni að koma saman til aðkjósa
nýja stjórnarnefnd frá 14. Januar 1877 fyrir næstu fimm ár.
— 21. Fór skozkt gufuskip frá Seyðisfirði með 1300 sauði
(sbr. 10. Oktbr.).
— s. d. Brotizt um nóttina inn 1 búð á Oddeyrí og stolið
peníngum, en aflaðist lftið, því verzlunarstjóri hatði
þann vana að hirða peníngana á hverju kveldi.
— 23. Andaðist Tómas Þórðarson á Kópsvatni, vatnsveit-
íngamaður.
— 25. Ráðgjafinn fyrir Island veitir 5 eða 6000 krónur sem
lán úr viðlagasjóði til kornkaupa handa Gullbríngu sýslu,
með 4% leigu og borga 1877 og 78.
— s. d. Umboðsskrá hauda Jóni ritara Jónssyni til að gegna
störfum lögreglustjóranna á íslandi í fjárkláðamálinu.
— 27. Kom stórt gufuskip enskt til Húsavíkur til að sækja
brennistein, sem þángað hafði fiuttur verið úr Þeista-
reykja námum. Það flutti út nokkurn kvikfénað, naut
og nálægt 300 fjár.
— 30. Prestinum á Hjaltabakka lagður vegur til að ná
lóðartolli fyrir kaupstaðarstæði við Blönduós.
— s. d. A Isafjarðardjúpi aflaðist mikið af smokkfiski til
beitu, á nýuppfundna rauðlakkaða blýöngla með látúns-
broddum niðurúr, beygðum út og uppávið allt í kríng.
Smokkfiskurinn var saltaður til geymslu.
Oktober 3. Auglýsíng amtmannsins í Suðuramtinu um læknis-
(as)