Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1878, Qupperneq 56

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1878, Qupperneq 56
vættis dauða á dögum Antoninus keisara, og var grafinn í Róm á þessum degi, sem honum er helgaður. 13. Januar er kallaður geisladagur. Hann er nefndur svo í Skálholtsbók af Kristinrétti Þorláks og Ketils („Frá hinum þrettánda degi jóla eru nætur sjö til geistladags"), og í Sturlúngu og Laurentius biskups sögu (1331), en þó er uppruni nafnsins ekki öldúngis viss. Það er reyndar alkunnugt, að helgir menn voru kallaðir geislar, svosem Einar Skúlason kall- ar Olaf konúng helga „geisla guðs miskunnar sólar", en hvort Hilarius biskup, sem þessi dagur er helgaður, og andaðist á Frakklandi 369, hafi sérstaklega verið kallaður svo, er ekki kunnugt, og vér ætlum það ekki hafa verið, þó að Finnur biskup vili hafa leidt heiti dagsins þaðan. Það virðist og held- ur lángt seilzt til safnsins, að draga það af nafni eins af hest- um Asanna, Gils eða Gisl, sem Finnur Magnússon í Goða- fræðis orðabók sinni. Líklegast virðist, að nafnið sé dregið af jólaljósunum, og því nafni þrettándans, að hann er kallaður ljósa-hátíðin, því þá mátti seinasti dagur jólanna vel kennast við geisla hinnar afliðnu ljósa-hátíðar. Þegar þrettándi var haldinn helgur, þá var pistillinn á þeim degi tekinn úr Esajas spádómum 60. kap. (vers 1—-7) þar sem segir: „Statt upp og tak við birtunni! því þitt Ijós kemur og dýrðin drottins rennur upp yfir þér. Sjá, myrkur er yfir jörðinni og dimma yfir þjóðunum, en yfir þér upp rennur drottinn, og uppi yfir þér opinberast hans dýrð. Heiðíngjarnir munu stefna á ljós þitt, og konúngarnir á ljómann, sem upp rennur yfir þér“, það mátti sannlega segja, að geislar af jólaljósunum stæði af þessum degi. 15. Januar er kendur við Maurus, sem sumir telja ábóta, og lærisvein hins helga Benedikts, sem hafi andazt þenna dag ár 584, en aðrir segja sé hinn sami og Hrabanus Maurus, sem var merkismaður mikill fyrir lærdóm sinn á dögum Karla- magnús keisara og þar eptir. Hann var fæddur í Mainz, varð ábóti í Fulda og síðan erkibiskup i Mainz og andaðist þar 856. Sumir telja hann til 4. Februari. Hann var lærisveinn Alkuins, hins nafnfræga kennara keisans Karlamagnús, og hefir eptir- látið sér mörg rit, sem enn eru til. Þess má geta, að hann var fyrstur manna til að fylgja því fram, að prédikað yrði á þjóðversku, eða á alþýðumáli, í staðinn fyrir á latínu, sem áður haíði verið venja. Saga á íslenzku um Maurus hinn helga (ábóta, en ekki Hrabanus) er til heil á skinnbók frá 15. öld í bókhlöðu Svíakonúngs í Stokkhólmi Nr. 2 í arkarbroti. 17. Januar er Antoniusmessa. Hann er kallaður hinn helgi og hinn mikli, því hann varð fyrstur og frægastur ein- setumaður. Hann var fæddur i Neðra-Egiptalandi og tók fyrir sig þegar í æsku sinni að gefa sig i einsetu. Ekki gekk hon- um þó til þess lestrarfýsn, því hann var ekki bóklæs, en hann vildi slá huga sínum allsendis frá veröldinni. Hann samdi reglur um það, hvernig einsetumenn skyldu haga til hjá sér, þegar þeir væri saman, og fékk nokkra aðra til að sameina sig (54)
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.