Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1878, Page 60

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1878, Page 60
múnkareglu Benediktinamúnka. Hann heimsótti einusinni syst- ur sína, og vildi síðan halda helm aptur á tilteknum degi, en hún gat það með bænum sínum, að þrumur og regn kom svo mikið, að hann varð að setjast um kyrt hjá henni þann dag, og komst ekki af stað fyr en daginn eptir. 17. Februar. Uppá þenna dag ber níu vikna föstuna á árinu 1878, og getur það því átt vel við, að skýra hér nokk- uð frá um föstuhaldið. Fasta var mjög algeng hjá Austur- landa þjóðum. Gyðíngar héldu föstu á hverju ári, og hjá Tyrkj- um er heill mánuður á árinu föstutími. Frá Gyðfngum tóku kristnir upp þann sið að fasta, og meðan katólskur siður var, þá voru miklar föstur, því að ótöldum föstudeginum í hverri viku, var jólafasta og nýjársfasta, og sæluviku-fasta var fjórum sinnum á ári. En þó var merkilegust páskafastan eða lánga- fasta, sem stundum er talin til nfu vikna eða 70 daga (níu vikna fasta). Þetta er talið með miklum heilögum þýðíngum. Guðs fólk var, segja menn, 70 ár í útlegð, og fékk síðan að snúa heim til föðurlands sfns. Hér er fyrirmynd um hið jarð- neska líf kristinna manna, meðan þeim er bægt frá að komast til hinnar himnesku Jerusalem, og til minnfngarum þetta var sett inn í kirkjuárið 70 daga tímabil, sem er kennt við föstuna. Það taldist aptur á bak frá hvíta laugardegi, sem kallaður var in albis, eða laugardeginum fyrir fyrsta sunnudag eptir páska, og var sá dagur(þ.e.sjötugastidagurþaráundan)kaIlaður^í7>/'?/aig'<'í/OTír eða sjötugasti dagur. Næsti sunnudagur var kallaður Sexagesima, þ.e. sextugasti dagur. Þareptirföstuinngángs sunnudag. Quinqua- gesima, þ. e. fimtugasti dagur,og fyrsti sunnudagur í föstu Quadra- gesima, svo sem þá væri -lo dagar til páska. Allar þessarföstutíðir höfðu sínar þýðfngar og takmarkanir. Múnkar með ströngum regl- um byrjuðu með níu vikna föstu, prestarnir með sjö vikna föstu og alþýða með fyrsta sunnudeginum í föstu. Og þessi fösturegla er frá sjöttu öld eptir Krist. Upphaflega var fastan einúngis lángifrjádagur og laugardagurinn fyrir páska; á fimtu öld, og máske fyr, voru menn farnir að halda þriggja daga föstu á hverri árstíð: f Marts vorföstu, í Juni sumarföstu, í September haustföstu, og í December vetrarföstu. Þetta var kallað je/u- nium quatuor temporum, eða „fjögra árstfða fasta“, og tvær af þessum lögðust saman við lángaföstuna og jólaföstuna. Þegar fastan var nú orðin svo löng, að hún átti að standa frá öskudegi til skfrdags, þá þurfti fólk að búa sig undir svo lánga föstu og iðrunartíð, og það var gjört með þvf, að auka sem mest gleðina áður en föstutíminn byrjaði, og prestarnir tóku vægilega á því. Þaðan er sprottin gleði sú og leikar, sem altítt er í kathólskum löndum að hafa áður en fastan byrjar. Það heitir á alþýðumáli »carneval«, og er dregið af carne vale (far nú vel, kjöt!). Gleði þessa og leiki vilja menn leiða útaf siðum hjá Rómverjum, sem höfðu leiki Pan skógagoði til minníngar um þetta mund ársins, og kölluðu Lupenalia. En hér var og margs annars að minnast. Fastan varð að standa um 40 daga, því svo marga daga fastaði Móses á Sinai-fjalli, (58)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.