Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1881, Side 37
Maí 24. Konungur ritar boðskap til alþingis.
— 29. Gripasýning í Skagafirði, á Reynistað.
I þessum mánuði fóru 2 frakkneskar fiskiskútui' í stranil
í Reyltjavík.
Júní 1. Prestvígður þorsteinn Benidiktsson, til Lundar í
Borgarfirði.
— 5. peir Jón rektor þorkelsson og Vilhjálmur Finsen
hæstarjettardómari gjörðir heiðursdoktorar við Kaup-
mannaliafnarháskóla, á 400-áríi-afmælishátíð háskólans.
þar voru viðstaddir af hendi Reykjavíkurstúdenta þeir
Davíð Scheving og Olafur Olafsson.
— s. d. Andast Fr. Gudmann, stórkaupmaður í Khöfn,
verzlunareigandi á Akureyri og stofnandi spítalans þar,
fimmtugur.
— 10. Sauðlauksdalur veittur síra Jónasi Bjarnarsyni, að-
stoðarpresti þar.
— s. d. Kosinn alþingismaður fyrir Suður-Múlasýslu Jón
Pjetursson, bóndi á Berunesi, í stað Einars Gíslasonar,
er sagt hafði af sjer þingmennsku.
— 11. Inntökupróf í latínuskólanum. 19 reyndir, en 3 þeirra
vísað frá aðj sinni, samlcvæmt stiptsyfirvaldaúrskurði 15.
maí.
— 11. til 13. Amtsráðsfundur í suðurumdæminn, í Reykja-
vík. I amtsráði: Gr. Tkomsen og Skúli Gíslason.
— 13. Einar Thorlacius tekur embættispróf í lögum við
Khafnarháskóla, með 2. einkum.
— 14. Latínuskólanum sagt upp.
— s. d. Sigurður Sigurðarson tekur embættispróf í málfræði
við Khafnarháskóla, með 1. einkunn.
— 15. Díana, strandsiglingaskipið, leg'gur af stað frú Reykja-
vík umhveríis landið sólarsinnis, með 109 farþega.
— s. d. Prestvígður Olafur Olafsson prestaskólakandídat,
til Brjánslælrjar.
— 16. Camoens, hrossakaupaskip Slimons i Leith, leggur af
stað frá Reykjavík í 1. ferð, með 332 hross. Flutti alls
burt þetta sumar af landinu 1051 hross, á 54 kr. að með-
altali. ,
— 16. til 21. Burtfararpróf í latínuskólanum. Utskrifaðir 9.
— 17. til 19. Amtsráðsfundur í vesturumdæminu, í Styklds-
hólmi. I amtsr.: Guðm. Einarsson og Sig. E. Sverrisson.
— 23. Andast síra Jón Högnason, uppgjafaprestur í Ilrepp-
hólum, úr iungnabólgn.
— 24. Andast húsfrúLáraZimsen, kona Nielj. Zimsen, kon-
súls í Reykjavík, úr lungnabólgn.
— 26. Próf í forspjallsvísindum í Reykjavík.
— 30. Staðíest af amtmanni fiskiveiðasamþykkt fyrir Seyðis-
tjarðar og Loðmundafjarðarflóa.
(a3>