Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1881, Qupperneq 42
15. Lög um breyting á eldri lögum um siglingar og verzl-
un á Islandi.
16. Lög um breyting á lögum um gjald á brennivíni og
öðrum áfengum drykkjum, dags. íl. febr. 1876, ogtilsk.
26. febr. 1872.
17. Lög um breyting á lögum, dags. 14. desbr. 1877, um
gagnfræðaskóla á Möðruvöllum.
Nóvember 7. Auglýsing stjórnarherrans um, að lærða skól-
anum skuli skipt í 6 bekki, og skólaárið ná frá 1. oktbr.
til 30. júni.
— s. d. Stjórnarherrann felur landshöfðingja að láta gjöra
alþingishús í Reykjavík með ráðum alþingisnefndarinnar
(sjá 26. og 27. agúst). Voru ætlaðar til þess í fjárlögun-
um 100,000 kr.
— 8. Afspyrnurok fyrir norðurlandi. Týndust tvö róðrarskip
af Skagaströnd, með 5 mönnum hvort, tvö úr Skagafirði,
tvö úr Steingrímsíix’ði. ,
— s. d. Andast í Reykjavík Olafur bóndi Thorlacius frá
Dufansdal, um fimmtugt.
— 11. Andast síra Páll Ingimundarson í Gaulverjabæ, 67
ára.
— 17. Auglýsing landshöfðingja um, hvernig leiguliðar á
þjóðjörðum eigi með að fara, er þeir vilja fá keypta ábýl-
isjörð sína.
— 24. Týndist á höfninni i Reykjavík yfirstýrimaðurinn ápóst-
gufuskipinu Phönix, Olsen að nafni.
— 26. Landshöfðingi setur cand. polit. Indriða Einarsson til
að annast umboðslega endurskoðan landsreikninganna 1880
og 1881, fyrir 2000 kr. á ári.
— 27. Andast í Reykjavík húsfrú Kristín þorvaldsdóttir,
ekkja Jóns sýslumanns Thoroddsen, 47 ára.
— 29. Byrjar nýtt blað í Reykjavík, er nefnist „Máni.“
Tólf arkir á ári. Ritstjóri Jónas Jónson.
Desember 1. Andast síra Hannes Árnason prestaskólakenn-
ari, f. 11. oktbr. 1809.
— 7. Andast í Khöfn JÓN riddari SIGTJRÐSSON,
skj alavörður, bókmenntafjelagsforseti, þjóð-
vinafjelagsforseti, fyrrum alþingisforseti, m.
fl., fæddur 17. júni 1811.
— 11. Landshöfðingi setur í liráð cand. theol. Steingrím
Johnsen kennara við prestaskólann í stað síra Hannesar
Árnasonar.
— 13. lítför Jóns Sigurðssonar í Garnisonskirkju i Kaup-
mannahöfn, með miklu f)jölmenni.
— s. d. Póstgufuskipið,Phönix kom heim tilKhafnar alfarið
úr póstferðunum til Islandi það ár.
— 16. Andast húsfrúIngibjörgEinarsdóttir, ekkjaJóns ridd-
ara Sigurðssonar, í Kaupmannahöfn, f. 9. oktbr. 1808.