Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1881, Side 48
Október 7. Austurríkismenn ganga á þing, í Vín. jietta þing
sækja og Czeckar frá Bæheimi, í i'vrsta sinn í 16 ár.
— s. d. þingmanDakosningar á Prússlandi, í fulltrúadeildina.
þjóðfrelsismenn fækkuðu nær um helming.
— 8. Unninn Húascar, hinn nafnfrægi turndreki Perúmanna,
at 2 brynskipum Chileverja, eptir frábæra vörn, er Grau
aðmíráll stýrði, fram und’an Mejillones, í Bolivíu. Grau
íjell í bardaganum og 130 manna með honum, af 216;
hinir flestallir sárir.
— 9. Andi'assy greifi þiggur lausn frá forstöðu utanríkismála
hjá Jósef Austurríkiskeisara og Ungverjakonungi; Hay-
merle barún gjörist utanríkisráðherra í hans stað.
— 12. Róberts, yfirforingi fyrir liði Breta í Afganistan, held-
ur sigurhróss-innreið í Kabúl;. ljet síðan hengja forsprakk-
ana að vígi þeirra Cavagnari og förunauta hans, setti land-
ið í hervörzlur og ljet færa Jakob konung, er sagt hafði
af sjer völdum, til Indlands, í varðhald, grunaðan um
svikræði.
— 14. og 15. Mikil spjöll af vatnavöxtum á Spáni sunnan-
verðum, einkum í Múrcíu: manntjón 1700, fjártjón 50
milj. kr.
— 15. Kristján IX. Danakonungur fer utan snöggva ferð að
finna dóttur sína þyri, suður í Austurríki.
— 20. Hefst verkmannafundur í Marseille.
— 26. Andast dr. A. Aagesen, prófessor í lögum í Khöfn,
53 ára.
— 28. Prússar ganga á þing, í Berlin.
Nóvember 1. Lokið verkmannafundinum í Marseille. Sam-
þykktar ályktanir um jafnrjetti kvenna á við karlmenn,
um að öreigar skuli kjörgengir á þing, um að eign ein-
stakra manna skuli verða sameign. Lögþingi Frakka kall-
að kvalarasamkunda þjóðarinnar, Gambetta hræsnari og
frelsisfjandi m. m.
— 2. Chilemenn vinna borgina Pisagúa af Pervimönnum og
Bolvíubúum.
— s. d. Bretar hóta Tyrkjasoldáni að halda Miðjarðarhafs-
flota sínum til Miklagarðs, nema hann gjöri gangskör að
um landstjórnarbætur í ríki sínu, einkum Litlu-Asíu, sam-
kvæmt Berlínarsáttmálanum.
— 14. Ilundraðára-afmælishátíð Oehlenschlagers skálds, í
Danmörku, Norvegi, Svíþjóð og víðar.
— 19. Oeirðir á Irlandi, út af bjargarskorti og fleiru; þrír
forvígismenn landsmanna settir í höpt.
— s. d. Chileverjar vinna orustu aí bandamönnum (Perú og
Boliv.) hjá Dolores.
— 22. Andast Delane, ritstjóri heims-blaðsins Times 1841—
1877, í Luudúnum.
— 23. Borgin Iquique í Perú gefst upp fyrir Chileverjum.
(44)