Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Árgangur

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1881, Síða 67

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1881, Síða 67
þessi piltur, sem þá œtlar að eiga, Katrín mín“. „Og ekki veit jeg annað, prestur minn. Hann segist reyndar ekki trúa á fjandann, en jeg cr óhrædd um að það lagast með tímanum; því svona var hann þórður minn sálugi, fyrri maðurinn minn, og það segi jeg yður satt, að við vorum ekki búin að vera saman meira en hálft missiri þegar hanu var farinn að trúa á liann eins vel og þjer, prestur minn góður, og vænti jeg yður þyki nú mikið sagt, hlessaðir verið þjer.“ — það er ekki fyrir fátækling að lifa, ef hann þarf að kaupa heilsuna hjá lækninum og vitið hjá lagamanninum. — „Jeg hefi“ segir nafnkenndur rithöfundur nokkur „þekkt margar stúlkur, sem aldrei þorðu að koma á hestbak af því að þær voru svo hræddar um, að hesturinn mundi fælast með sig og fella sig af baki; aðrar hefi jeg vitað varast að fara á sjó, af því þær bjeldu að hátnum mundi hvolfa undir sjer, í hvað góðu veðri sem var; og enn hefi jeg vitað kvenn- fólk svo huglítið, að það hefir forðazt að koma út þegar dögg hefir verið á jörðu, til þess að væta sig ekki í fæturna; en aldrei hefi jeg vitað stúlku bresta áræði til að giptast, og er það þó vissulega meiri áhætta en allt hitt.“ — Handiðnamaður nokkur átti einu sinni tal við Benja- mín Franklín, og kvartaði mjög yfir kjörum sínum. Franklín innti eptir, hvernig á því stæði, að hann yndi svo illa hag sínum. Hinn segir honum það. Franklín svarar: „þjer þylcir atvinna þín eigi nógu arðsöm; þú ert þá ágjarn. þjer þykir hún of erfið; þú ert þá latur. þjer þykir staða þín eigi nógu virðuleg; þú ert þá metorðagjarn. það er því auðsjeð, að þú liefir hlotið þá stöðu, sem þjer er hentugust, til þess að losa þig við aila þessa lesti þína.“ — „Fríþenkjari“ nokkur sagði einu sinni svo margir heyrðu: „Jeg fyrir mitt leyti er ekki sá einfeldningur að ímynda mjer, að nokkur tíuð sje til.“ Ung stúlka varðfyrst til svars, og spyr, ofurhógværlega: „Af hverju þá?“ tíuð- leysinginn svarar, með háðslegum spekingssvip: „það skal jeg segjayður, góðin mín: jeg hefi aldrei komið auga á liann, og enginn menntaður maður trúir því sem hann getur ekki sjeð.“ „þá megið þjer ekki misvirða við mig, þo jeg efist um, að þjer hafið nokkra skynsemi; því að það er eins fyrir mjer með hana og fyrir yður með Guð“, svaraði stúlkan. — Ef ólánið lcemur að iinna jiig, þá vertu þolinmóður og með glöðu liragði; það mun þá ekki hafa langa viðdvöl, ]iví ]>að unir sjer ekki innan um glaðværð. — Fáir eru svo skynsamir, að þeir fyrirlíti lof heimsk- ingjanna. — Enginn á síður lofið skilið en sá sem eltir það mest. — Washington hershöfðingi, frelsislictjan mikla, fyrsti forseti Bandaríkjanna í Vesturheimi, gjörði sjaldan að gamni sinu, en var manna fyndnastur ef hann tók á því. þegar verið var að ræða á allsherjarþinginti herlagafrumvarp fyrir Bandaríkin, kom einn |iingmaður með þá uppástnngu, að

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.