Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1898, Blaðsíða 44
Professor Willard Fiske er fæddur í Vesturheimi
11. nóv. 1831; hann fór snemma að leggja sig eptir tungu-
málum Norðurlanda, og tók að kynna sjer þau sem hezt;
þá dvaldi hann um tíma bæði i Kaupmannahöfn og Upp-
sölum; meðan hann dvaldi í Kaupmannahöfn komst hann í
kynni við ýmsa Islendinga, er þar áttu þá heirna. Er hann
hafði lokið námi sínu, fór hann aptur heim og árið 1868
varð hann prófessor í norðurlandamálum við Cornell-háskóla
í Iþöku, skammt frá New-York. Eins og áður var getið,
gekkst hann fyrir miklum bókagjöfum, er Bandarikjamenn
gáfu Islandi 1871, og frá þeim tima mun hugur hans sjer-
staklega hafa farið að hneigjast að islenzkum fræðum. —
Arið 1879 kom hann hingað til lands og voru þá í för með
konum tveir lærisveinar hans, stúdentar frá Cornell-háskóla,
A. Reeves og W. H. Carpenter, er hann hafði vakið hjá
áhuga á íslenzkri tungu og bókmenntum; ferðaðist hann
hjer viða um land um sumarið og talaði hann islenzka
tungu mæta vel, þegar er hann kom. Meðan hann dvaldi
hjer í Reykjavík um haustið, gjörðist hann hvatamaður að
þvi, að sett var á fót lestrarfjelag meðal lærisveina latinu-
skólans, er nefnt var íþaka eptir hæ þeim, er hann átti
heima i; hefur hann á hverju ári síðan gefið þvi miklar
gjafir í blöðum og hókum og hafa þeir, sem verið hafa í
latinuskólanum í næstliðin 18 ár, átt þar kost á margvis-
legum fróðleik, er þeir annars mundu hafa farið á mis við.
Enn frernur átti hann áður en hann fór hjeðan af landi
hlut að því, að Fornleifafjelagið komst á fót, og var hann
einn af stofnendum þess.
Arið 1881 lagði hann niður emhætti sitt við Cornell-
háskóla; settist lianu þá að á Florens á Italiu, og hefur
átt þar heima síðan; hefur hann keypt þar hús það, er
ritsnillingurinn Landor fyrrum átti og býr í því; hefur
hann látið endurbæta húsið, en af virðingu fyrir hinum
fyrri eiganda, hefur hann gætt þess, að varðveita herhergi
þau, sem minning hans er nátengdust við, svo að þau eru
eins og þau voru, þegar Landor bjó í þeim.
Snemma fór Fiske að safna islenzkum hókum og á
hann nú fulikomnara safn af þeim, en nokkur annar ein-
(32)