Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1898, Blaðsíða 53
suður- og austurlandi; lijelzt jiað að mestu til hins 6.
A Rvíkurhöfn strönduðu 2 skip, »Fortuna«, norskt
timburskip, og fiskiskipið »Ingólfur«. A Austurlandi
urðu fjárskaðar allmiklir víða. I þessu veðri varð úti
Þórólfur Stefánsson frá Birnufelli i Fellum.
ð. Brann annar bærinn á Bakka í Ölfusi; litlu varð bjarg-
að; fólkið komst út.
9. Byrjaði nýtt blað »Bjarki« á Seyðisfirði. IÍ itstjóri:
Þorsteinn Erlingsson, cand. philos.
13. Guðjón Jónsson, sýslunefndarmaður í Yestmannaeyjum,
drukknaði af bát (38 ára).
14. Hjörtþór Illugason, verzlunarmaður á Eyrarbakka, fannst
örendurvið Svínabraunsveg; hafði verið dauðadrukkinn.
23. »Andreas«, skip frá Mandal með tirnbur o. fl., strandaði
í Selvogi.
S. d. drukknuðu 2 sunnlendingar á Mjóafirði og 1
austfirðingur.
S. d. strandaði »Grána« við Suðureyjar, fyrsta verzl-
unarskip, sem Gránufjelagið eignaðist (1871).
1 þ. m. fórst bátur á Skagaströnd, með tveim mönnum.
7. nóv. A Fossvik á Skaga fórst bátur í lendingu með
þrem mönnum; einum bjargað.
12. Jón nokkur Bjarnason á Svelgsá í Helgafellssveit
fyrirfór sjer.
20. Þilskipið »Neptunus« brann til kaldra kola í Gufunesi;
rannsókn hafin gegn 3 mönnum, en ekkert sannaðist
á þá.
25. Jens Jafetsson fannst örendur í hegningarhúsinu í Rvík
(um sextugt).
29. Verzlunarhús Konráðs Hjálmarssonar, kaupm. í Mjóafirði,
brann til ösku; manntjón ekkert.
I þ. m. rak hval í Látravik á Ströndum.
4. des. Baðstofubruni á Horni við Önundarfjörð; litlu
varð bjargað.
25. (jólanóttina) kindaþjófnaður framinn af CHsla Hjálm-
arssyni, húsmanni á Næfranesi í Dýrafirði.
28. Ofsaveður á Austfjörðum; á Stöðvarfirði reif upp grjót,
braut glugga í húsum með fleiri skemmdum.
(41)