Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1898, Blaðsíða 81
í skýrslunni eru talin 40 skip, en 23 var sleppt að
nafngreina vegna rúmleysis, en þau öfluðu í líku hlutfalli
við hin; sum þeirra voru skemmri tíma við þorskveiðar.
Þessi 63 skip öfluðu 23,664 skpd. af fiski upp úr saltijþar
af var fiskað við Island 6664 skpd. af 38 skipum á 8—12
vikna tima, en 17,000 skpd. við Færeyjar.
Af skýrslunni sjest, að Færeyingar hafa stærri skip en
hjerlendir menn, en að tiltölu hafa þeir færri menn á skip-
unum. Veiðitíminn er álika langur.
Seinustu dagana af marz (1897) gengu undir próf 19
ungir menn frá skipstjóraskólanum í Þórshöfn; allir stóðust
prófið; fengu 6 hezta vitnishurð: 42 stig, 4 41, 5 38, 3 34
og 1 29 stig. En seint i april gengu 12 menn undir próf
í stýrimannaskólanum í íteykjavik og allir stóðust prófið.
Þeir heztu 2 fengu 60 st., 2 59, 4 58—54, 2 54—53 og 1
44 stig. Eptir þessu hefir kunnáttan verið meiri og kennsl-
an hetri í stýrimannaskóla Eeykjavíkur en i Þórshöfn þetta
ár, þar sem lægsti sveinninn fekk fleiri stig en heztu svein-
arnir í Færeyjum. Fyrirliðar úr herskipinu »Heimdal« voru
í prófnefndunum á háðum stöðum. Hæsta aðaleinkunn við
slík próf er 63 stig, og 18 stig minnst, til þess að geta
staðizt prófið. Tr. G.
Þorskveiðar í Lófót 1895-
Eins og mörgum er kunnugt, gengur mergð fiska utan
úr hafi upp að vesturströnd Noregs norðarlega, þar sem
nefnist Lófót. Eiskurinn kemtir þar eptir miðjan janúarm.,
og er húinn að hrygna um miðjan aprílmán., og þá mest-
allur farinn til djúps aptur. Lófót er þenna tima langstærsta
fiskiver Norðmanna; þá er þar saman kominn mikill fjöldi
fiskimanna, hæði af þar inn- og utansveitarmönnum. Ar-
lega heldur stjórn Norðmanna gæzlumenn, meðan á veiðinni
stendur, til að safna skýrslum, og til að gæta reglu og lög-
hlýðni á sjó og landi. Fyrirliði þessara gæzlumanna heitir
Knap, og er eptirfarandi skýrsla ágrip úr skýrslu þeirri, er
hann sendi innanrikisráðaneytinu i Rristjaniu.
(69)