Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1898, Blaðsíða 83
vertið í Lófót siðan 1880; en af þvi fiskur var þ. á. í mjög
lágu verði, varð hluturinn að krónu tali lægri en stundum
áður; t. d. var hlutur hvers manns að meðaltali árið 1894
250 kr.
Tap og missir á veiðarfærum varð nálægt 100,000 kr.
á haldfærum og 30,000 kr. á netum.
%•. ^ sj:
Skýrsla þessi er að mörgu leyti eptirtektaverð fyrir is-
lenzka sjómenn. Norðmenn hafa hirt alla sina þorskhausa,
til þess að fóðra með þeim skepnur og rækta jörðina. Alla
lifur hirða þeir lika, og búa til úr lienni mestallri meðala-
•lýsi, sem þeir selja um allan heim fyrir meira en hálfa
milljón króna.
Hjer á landi er með litilli undantekningu öllum þorsk-
hausum og lifur fleygt i sjóinn, að minnsta kosti á þilskip-
um, en jörðin stendur áburðarlaus, skepnur deyja af fóður-
skorti á vorum, og meðaialýsi frá Noregi er keypt í lyfja-
búðnm hjer dýru verði. Ekki er von að vel fari, meðan
menn standa blindir fyrir sínum eigin hag og framförum
• annara þjóða. Svo segja menn að landið sje illt og óbyggi-
legt, en það eru þeir sjálfir, sem, eins og Jón biskup Yída-
iiu segir, »kasta gjöfunum fratnan i gjafarann«. ]>að skal
viðurkennt, að í litlum fiskiskipum er lítið rúm fyrir mörg
lifrarílát, en i stærri skipum er það vel hægt, ef vilji væri.
Hjer er verið að hisa við fiskisamþykktir, án þess að
hafa nokkra þekkingu á göngu eða eðlisfari fiskanna. Ein
er sú, að banna mönnum að leggja net i sjó af þeim ástæð-
um, að þau breyti fiskigöngum, og af því, að netamissir
gjöri menn fátæka. I Lófót, þar sem likt stendur á eins og
hjer, að fiskurinn kemur utan úr hafi upp að strönd lands-
ins til að hrygna á grynningum, þar sem hrognin geta
timgazt, leggja Norðmenn net frá 1516 bátum og hræðast
ekkert að fiskurinn breyti göngu sinni, nje tap af netum
fyrir 30,000 kr. Hvorki mundu Norðmeun ár eptir ár nje
dugandi hyggindamenn við Faxaflóa keppast við að leggja
net, ef reynslan væri ekki húin að sanna þeim, að gróðinn
er svo fljótt tekinn með netum, þegar vel aflast, að neta-
missis gætir ekki gagnvart tekjiinum.
(71)