Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1898, Blaðsíða 77
setu útfall er mest, eru þvi búnar til dýrar skipakviar, sem
skipunum er hleypt inn í með flóði, og kviinni svo lokað
áður en fellur út, svo að skipin ern þar inni á floti, en á
slíkum stöðum ern skipagjöld mjög há. Einnig er sigling
erfið á fjörðum móti straum, þar sem sjávarföll eru mjög
mikil.
Stœrð íslenzkra fiilskipa. Skýrslan um stærð fiski-
veiðaskipa landsmanna er gjörð meira af vilja en mætti, því
innlendar skýrslnr um þetta eru svo ófullkomnar, að víða
er ekki hægt á þeim að hyggja; stærð margra skipanna
hefi jeg fundið í útlendri hók. Það er undravert að mönn-
um getur ekki skilizt, hve nauðsynlegt það er, að hafa sem
flestar og rjettastar skýrslur um hag þjóðarinnar, til þess
að geta sjeð ástand iandsmanna, og hve framför og efna-
hag þeirra miðar áfram.
Skýrsla þessi sýnir, að fiskiskip landsmanna eru fá og
flest smá. Fiskiskip Færeyinga eru að jafnaði miklu stærri;
fyrst áttu þeir smá skip, en þeir hafa selt þau og keypt
stærri skip, þvi reynslan hefur sýnt þeim, að stærri skipin
eru arðmeiri og bentugri til þorskveiða.
Til hákarlaveiða eru smá skip hentugri, þess vegna er
eðlilegt, að skipin við Eyjafjörð og Siglufjörð sjen smá,
því þar ganga þvi nær öll þilskipin til hákarlaveiða.
Um hitamœla. Mismunur þeirra þriggja hitamæla,
sem nefndir eru í skýrslunni að framan, liggur í því, að
rúmi þvi, sem liggur milli þess, að vatn frýs og sýður, er
skipt í mismunandi mæiistig.
Drehbel, hollenzkur maður, fann fyrst upp hitamæla
seint á 16. öldinni, en franskur visindamaður, Réaumur að
nafni, f. 1683, d. 1757, breytti mælinum þannig, að hann
skipti i 80 stig rúminu milli þess, sem vatn byrjaði að
frjósa og sjóða, þannig, að 0 var við frost og 80 við suðu-
mark. Celsius, sænskur stjörnufræðingur, f. 1701, d. 1744,
skipti aptur þessu rúmi i 100 mæiistig, sem er hið eðlileg-
asta og þægilegasta. A sama tima var uppi þýzkur fræði-
maður, sem Fahrenheit hjet, hann bjó til hitamæli árið
1714, og skipti mælistigunum niður á allt annan hátt.
Suðumarkið setti hann 212 mælistig, og þegar vatn hyrjaði
(65)