Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Årgang

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1898, Side 75

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1898, Side 75
Athugasemdir við skýrslurnar. Um túnasljettun. Skólasveinn i Olafsdalsskóla B. Benjamínsson sendi mjer í vetur mynd þá, sem stendur hjer að framan, dálítið aukin, yfir túnasljettun á landinu árið 1894, og þótti mjer vænt um, að hann hafði gripið hugmynd þá, sem var í almanaki Þjóðvinafjel. árið 1897, þar sem sýndur er herafli og menntunarástand þjóðanna i Evrópu. Jeg bætti svo við mynd fyrir árið 1895 til samanburðar við árið 1894. Sá samanburður er skemmtilegur, þvi af honum sjest, að sljettun hefur drjúgum aukizt i flestum sýslum, í sumum þeirra hefur verið unnið svo mikið siðara árið, að þær hafa komizt upp fyrir þær sýslur, sem ofar stóðu árið áður. Oskandi væri, að sýslurnar fari að fara i kapphlaup, að komast hver upp fyrir aðra, eins og drengir í skólabekk; í hið minnsta er vonandi, að 5 sýslurnar neðstu sjái, að þeirra blettir á myndinni eru nokkuð litlir, einkum i Austur- Skaptafellssýslu; óhurðugra er varla hægt að standa á mynd en þetta, að eins með 240 Q faðma sljettaða heilt ár; það er fjórðungur úr dagsláttu. I Skaptafellssýslum háðum er viðast mjög erfitt og hættulegt að sækja lífsbjörg sína á sjóinn; verður þvi líf og velmegun sýslubúa að mestu leyti að byggjast á land- búskapnum; þess vegna er áríðandi fyrir þá, að hjálpa jörðinni sem mest til að framleiða bústofn þeirra, enda er liklegt, að jarðabætur í þeim sýslum launi bezt það verk, sem í jörðina er lagt, því hvergi á landinu er meiri veður- blíða en þar, að undanskildri Bangárvallasýslu, en þar eru líka jarðabætur stundaðar all-vel. Arið 1885 var svo talið, að ræktuð tún á öllu landinu væru 31,052 dagsláttur, árin 1886 til 1890 að meðaltali 33,390 dagsláttur, árið 1891 36,446 og 1895 40,705 dagsláttur. Sjálfsagt eru tiilur þessar mjög ónákvæmar, eins og flestar hagskýrslur á þessu landi, en líklegt er, að ónákvæmnin hafi verið svipuð öli árin, svo ráðgjöra megi, að ræktuð tún hafi aukizt um 9000 dagsláttur síðustu 10 árin, og er það gott, ef framhaldið fer að óskum. (63)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.