Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1916, Blaðsíða 78
og ]jós á hár, alvarlegur í framgöngu, þögull löng-
um sem frændur hans í Holstein og Mecklenburg,
starfspolið óbilandi, hreinskilinn, beitir meir ljósri
hugsun en snjöllu orðskrúði, enda er maðurinn
yfirlætislaus og óframur og heflr hugann allan á
trúnaðarstarfi sínu. Moltke var orðinn hniginn að
heilsu er ófriðurinn hófst og fékk því lausn frá starfi
sinu í haust, en við því tók Falckenhain hermála-
ráðgjaíi.
Josepli Jacques Césare .ToflVe yfir-
herforingi alls Frakkahers er fæddur i Pyrenea-fjall-
bygðum árið 1852. Hann gekk kornungur í herfor-
ingjaskóla og hafði ekki lokið námi, er hann var
kvaddur i styrjöldina 1870, átján ára gamall. Var
hann þegar gerður sveitarforingi við stórskotaliðið
og tók þátt í vörn Parísarborgar meðan á umsátinni
stóð. Síðan hefir hann fengið sífelt hærri völd og
nafnbætur í hernum, enda hefir hann aldrei legið á
liði sínu, heldur tekið þátt i öllum styrjöldum, er
Frakkar hafa háð síðan 1870. Hann var í Tonkin-
ófriðnum og lét þá hlaða skotvígi undir miðri kúlna-
hríð Kínverja. Síðar hafðist hann við i löndum
Frakka í Austur-Indlandi og átti þá í ófriði. Loks
var hann í skærum við Afríkumenn hjá Timbuktu,
áður hann var kvaddur heim til Parísar. Tók hann
við yfirforustu hersins í júlí 1911, eftir miklar brösur
og byltingar í hermálaráðuneyti Frakka.
Joffre er off nefndur »hinn þögli«. Hann er fá-
talaður og stuttorður, en öruggur í ráðum og aldrei
óviðbúinn. Hefir verið sagt um hann, að hann væri
»áþekkur góðum varðhundi, hljóður, og ávalt viðbúinn
að bíta«. (Sbr. Dailj' Mail Year Book 1914, og er
þetta sagt til lofs en eigi lasts).
Joffre hefir kappsamlega unnið að umbótum
hersins síðan hann tók við yfirforustunni, og var
þess sízt vanþörf. Tjáði lítt móti að mæla kröfum
(12)