Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1916, Blaðsíða 156
Kantsjiík-skógarnir í Brasilíu.
Kautsjúk er kvoða úr trjám, sem notuð er til
<ótalmargra hlula, meðal annars hringa um hjól,
helir því brúkun þess aukist mjög siðan reiðhjól og
bifreiðar haía svo mjög fjölgað í heiminum, hefir
því eftirs])urn eftir þessu efni mjög vaxið og verðið
hækkað. Pegar brennisteinn er bræddur saman við
kautsjúk, verður það liart sem horn og eru þá búnir
til úr því kambar, hárgreiður, tölur og aðrir hlutir,
■er áður voru smíðaðir úr horni.
Trjátegund þessi hefir vaxið í heilu löndunum í
Asíu, Afríku og Ejjaálfunni, en er nú að þverra vegna
hóflausrar eyðslu skóganna. En f^TÍr nokkrum árum
fundu ferðamenn í óbygðum í Brasilíu lengst inni í
landi mikil landtlæmi þar sem þessi sama trjátegund
vex. Þann skóg hafði engin mannshönd snert, og
trén voru þar svo afar stórvaxin og þétt, að nær var
■ómögulegt að komast inn í skóginn sem víða óx í
tnýrarflóum.
Ein af stórám þeim, er renna í Amazoníljótið,
heitir Madeira og er skipgeng 1150 km. inn í land á
leiðinni til Kautsjúk-skóganna, en þá koma í ánni
llúðir og fossar, svo skip komast ekki lengra, var það
ráð tekið, að b^^g'gja 370 km. langa járnbraut þaðan
til þessara verðmætu skóga, en það var mjög dýrt
verk og erfilt. Fyrst var mjög erfitt að brjótast gegn-
um þétta og stórvaxna skóga, og svo var hiti þar
svo mikill og loftið óholt, að hvítir menn þoldu ekki
vinnuna, og mistu lífið þúsundum saman, varð því
að fá svertingja frá Afríku, sem þó ekki þoldu lofts-
lagið og hrundu niður, bæði af gula-febernum, Malaria
■og eitruðum flugum.
Nálægt 22000 manns liafa verið aðlluttir til að
framkvæma verkið, nú er meira en helmingur þeirra
dáinn, og búið að kosta til verksins alt að 50 milj-
(90)