Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1916, Blaðsíða 148
af enskum botnvörpung við Skotland, svo að skipið
sökk en menn björguðust.
10. vSnorri goðk 244 smál., keyptur 1911 íiEng-
landi af h.f. »Ðraupnir« í Reykjavík.
11. y>Skúli fógetic, 280 smál. að stærð, bygður í
Englandi 1911 fyrir li.f. »Alliance<( í Rvík. Skipið var
ágætt og aflaði mikið, en rakst á sprengidufl Þjóð-
verja nálægt Englandi 1914 og sökk. Menn björguð-
ust nema fjórir.
12. »Eggerl Ólafssoim 263 smál., keyptur í Eng-
landi 1911 af Pétri Ólafssyni á Patreksfirði, sem síðar
seldi skipið h.f. »Eggert Ólafssyni« í Reykjavík.
13. »Skallagrímur« 258 smál. keyptur frá Eng-
landi 1912 af h.f. »Kveldúlfi« í Reykjavík.
14. og 15. »Baldur« og »Braga«, hvorn um sig
291 smál., létu bræðurnir P. J. og Th. Thorsteinsson
í Rvík byggja í Englandi árið 1911. Bæði skipin korau
til Reykjavíkur í febr. 1912.
16. »Apríl« 295 smál., lét h.f. ísland í Rvík byggja
í Englandi árið 1911. Skipið kom til Rvíkur í febr. 1912.
17. »Great Admirah 284 smál., keypt í Englandi
af skipstjóra Pórarni Olgeirssyni í Reykjavík 1912.
18. »Jarlinn« 277 smál., keyptur í Englandi árið
1913 af h.f. »Grœðir« á ísafirði.
19. nlngólfur Arnarsotm 306 smál., h.f. »Haukur«
í Rvík lét smíða skipið í Englandi 1912, kom til
Reykjavíkur í febr. 1913.
20. »IIetgi magria 137 smál. að stærð var keyptur
í Englandi 1913 af kaupm. Ásgeiri Péturssyni á Oddeyri.
21. »Maí« 264 smál., lét h.f. »ísland« í Reykjavík
byggja í Englandi 1913. Skipiö kom til Reykjavíkur
fyrst á árinu 1914.
22. »Njörður« 274 smál., keypt í Englandi 1914
af h.f. »Nförður« í Reykjavík.
23. »Jarl Herefordn 111 smál. nettó, keyptur í Eng-
landi í ársbyrjun 1915. Skipið er hálft eign h.f. »Eggert
Ólafsson« og hálft skipstjóra Halldórs Porsteinssonar-
(82)