Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1916, Blaðsíða 83
alaborgir. Keisari sinti orðum hans, skarst i málið
°S afstýrði framræslunni. En það er frá Hinden-
^urg að segja, að hann keypti sér gamla og þunga
fallbyssu, fékk sér vagna og eyki og lét aka fram og
aftur um alla stíga og vegleysur milli vatnanna og
Uru flóana, og fékst við það hvert sumarið af öðru.
^ar ekki trútt um, að sumir henti gaman af þessum
atförum hans. Sjálfur vissi hann, hvað i húfi var:
hann gagnþekti landið, vissi nákvæmlega, hvar fært
var að komast áfram og hvar mest lá í eða ófærur
voru. — Þessi frábæra þekking hans kom að ágætu
haldi i viðureigninni við Rússa síðastliðið haust;
Þeir lentu í verstu ógöngum, menn og hestar og far-
angur sökk á kaf. Ilindenburg sveifiaði liði sinu
hfflhverfis þá og vann á þeim hvern stórsigurinn af
öðrum.
Hindenburg er mikill vexti, gildlegur á velli,
‘ríður sýnum, mikilúðlegur og atkvæðamikill, en þó
góðmannlegur. Hann er fyndinn og glettinn í við-
ræðum og hugljúfi allra, er kynnast honum. Er
hann sannkallað átrúnaðargoð þýzku þjóðarinnar og
það að maklegleikum.
Alexander von Illnck, hershöfðingi Rjóð-
Verja yfir yzta hernum í hægra fylkingararmi á vestra
Vigvellinum, er fæddur í Múnster 20. maimán. 1846.
Faðir hans var húsasmíða-meistari af borgaraættum,
«g er v. Kluck þvi eini yfirforinginn í her Pjóðverja,
sem ekki er af höfðingjaættum kominn. — v. Kluck
gekk í herinn árið 1865 og var undirforingi smá-
flokks bændahersveitar í ófriðnum við Austurríkis-
menn árið eftir, tvítugur að aldri. Síðan var hann
í styrjöldinni við Frakka, gekk vel fram og varð
tvisvar allmjög sár. Tveim árum siðar varð hann
foks smáflokksstjóri og sóltist honum seinna vegur-
fnn til æðri valda í hernum en mörgum öðrum, og
ínun valdið hafa, að hann var ekki kynborinn. Hann
(17)