Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1921, Blaðsíða 31
Verner von Heidenstani.
Svíar hafa löngum verið fremstir allra Norður-
landaþjóða. Þeir tímar hafa verið, að Svíaríki var
stórveldi og öll Norðurálfa heims var uggandi um
það, hvað Svíar myndu leggja til allsherjarmála.
Svíar eiga og merkari bókmentir á síðari öldum
heldur en nágrannaþjóðir þeirra, bæði í skáldskap
og vísindum. í listum, einkum sönglist og málaralist,
standa Svíar í röð fremstu þjóða. Hér skulu engin
nöfn þulin, enda yrði sú þula löng. Almanak fjóð-
vinafélagsins hefir áður ílutt myndir af Strindberg
og Selmu Lagerlöf. í þetta sinn kemur mynd af
Verner von Heidenstam, þeim manni, sem teljast
má stórhöfðingi í andans heimi, og ber að skilja
það bókstaflega.
Verner (fullu nafni Carl Gustaf Verner) er fæddur
þann 6. júní 1859 í Olshammar, er að fornu hét
Úlfshamar, í héraðinu Tiveden i Svíariki miðju milli
vatna (Vánern og Vettern). Er hann göfugra manna
«g aðalborinn. Var hann einkabarn foreldra sinna.
Var hann í æsku settur til menta og gekk í latínu-
skóla, en er hann varð 16 ára gamall, veiktist liann
og varð að hverfa frá námi. Sendu þá foreldrar
hans hann utanlands og hélt hann til Suðurlanda.
Dvaldist hann þá um hríð bæði í Ítalíu, Grikklandi
og Egyptalandi. Hafði þessi dvöl hans suður þar
stórmikil áhrif á hugarfar hans og þroska. Línur og
litir suðrænna og austrænna landa gerðu hug hans
fanginn og juku hugmyndaflug hans. Hugðist hann
nú að gerast málari og vildi birta þær hinar fögru
sýnir, er Suðurlönd höfðu opnað honum og binda
litum leik hugarflugsins, sem honum var þaðan kom-
•nn fyrir innri augum. Stundaði hann nú um nokkur
ár málaralist bæði í París og í Rómi.
En er tímar liðu, dróst hann frá þessari list;
(1) 1