Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1944, Blaðsíða 61
hendi. Meðal þeirra voru: Áskell Löve, Rvík (lauk
prófi í erfðafræði og grasafræði við háskólann í
Lundi með hárri eink.), Hallgrímur Björnsson frá
Tjarnargarðshorni í Svarfaðard. (lauk prófi í efna-
verkfræði við verkfræðingaskólann í Þrándheimi.
með góðri eink.), Magnús Sigurðsson frá Veðramóti
(lauk prófi í viðskiptahagfræði við háskólann í
Leipzig með ágætiseink.) og Þórhallur Ásgeirsson,
Rvík (lauk meistaraprófi í hagfræði og þjóðfélags-
fræði við háskóla Minnesotarikis með ágætiseink.).
[Að styrjöldinni lokinni verður birt i árbókinni yf-
irlit um þá íslendinga, er lokið hafa embættispróf-
um við erlenda háskóla á stríðsárunum].
Siglingar. Samgöngur voru eingöngu við Bret-
land og Bandaríkin. Eimskipafélagsskipin sigldu öll
til Ameríku, en leiguskip og togarar önnuðust sigl-
ingar til Bretlands. Stran'dferðir voru með líkum
hætti og áður.
Skiptjón. Alls drukknuðu 62 íslendingar á árinu
að meðtöldum þeim, er fórust í ám og vötnum (árið
áður 147 menn). Mesta sjóslysið var, er togarinn
.,Jón Ólafsson" fórst milli Bretlands og íslands i
október. Fórust þar 13 menn. Nokkrir íslendingar
fórust með erlendum skipum. í janúar fórst pólskt
skip við Mýrar. Fórust þar 25 menn, og voru tveir
þeirra íslenzkir.
Stjórnarfar og störf Alþingis. Hinn 9. maí var
Sveinn Björnsson af sameinuðu Alþingi kjörinn rík-
isstjóri íslands frá 17. júni 1942 til jafnlengdar 1943.
Hinn 25. jan. fóru fram bæjarstjórnar- og hrepps-
nefndarkosningar. Bæjarstjórnarkosningum í Rvik
var þó frestað til 15. marz sökum verkfalls prentara.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk meiri hluta fulltrúa í
bæjarstjórnum Rvíkur, Akraness og Vestmannaeyja,
en Alþýðuflokkurinn í bæjarstjórnum Hafnarfjarð-
ar og ísafjarðar. í öðrum bæjarstjórnum fékk eng-
inn einn flokkur hreinan meiri hluta.
(59)