Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1954, Blaðsíða 38
vatni. Og hver einasta hola varð að gróðrarstíu fyrir
mýflugur.
ÁSur en Gorgas kom til Panama, voru menn vanir
að ganga í skýi af mýflugum á götunum þar. Þegar
starfi hans var lokið, sást varla nokkur fluga á öllu
eiðinu. Og að sama skapi hafði heilsufarið batnað.
Arið 1905 höfðu 62 veikzt af gulu sóttinni og 19 dáið
í júnímánuði einum. En árið 1906 kom aðeins fyrir
eitt einasta tilfelli af gulu sóttinni allt árið, og síðan
má heita, að landið hafi verið algerlega laust við
hana.
Plinn 1. jan. 1914 var Gorgas gerður að yfirlækni
alls ameriska hersins, og var þeirri veitingu fagnað
af öllum læknaheimi Bandaríkjanna. Hann skipulagði
læltnishjálp hersins svo vel og rækilega, að hún hef-
ur verið öllum öðrum þjóðum til fyrirmyndar siðan.
Rockefellerstofnunin fékk seinna Gorgas til þess
að taka að sér forstöðu í nefnd, sem skipuð var til
þess að kveða niður gulu sóttina í heiminum, því að
tiltölulega lítið liafði verið gert til þess að kveða
liana niður í Suður-Ameríku, og seinna kom á dag-
inn fyrir störf þessarar nefndar, að gula sóttin er
líka til í Afríku. Þegar Gorgas var á leiðinni til Afriku,
til þess að kynna sér ástandið þar, lézt hann í sjúkra-
húsi í London 4. júlí 1920.
Við andlát hans ltom það glöggt fram, ekki aðeins
í Ameríltu og Englandi, heldur um allan hinn mennt-
aða heim, að fallinn var einhver mesti velgerðar-
maður, sem mannkynið hafði átt. Hann var jarðaður
cins og konungur, og sparaði Bandaríkjastjórn ekk-
ert til þess að gera útför hans sem veglegasta.
En gula sóttin er lífseig. Þegar Rockefellerstofn-
unin tók að sér að útrýma gulu sóttinni úr heimin-
um, var talið vist, að ekkert kvikindi gæti borið veik-
ina nema Aedes aegypti. Við rannsóknirnar i Afriku
kom i ljós, að sex aðrar tegundir af aédes geta borið
veikina og auk þess tvær aðrar mýflugnategundir,
(36)