Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1954, Side 80
32.924 atkv., sr. Bjarni Jónsson fékk 31.045 atkv. og
Gísli Sveinsson 4.255 atkv. Ásgeir Ásgeirsson tók við
embætti 1. ág. — Stjórn Steingríms Steinþórssonar
sat að völdum allt árið. Tvennar aukakosningar til
Alþingis fóru fram á árinu. Hinn 15. júni var kjörinn
þingmaður fyrir ísafjarðarkaupstað í stað Finns heit.
Jónssonar. Kjörinn var Hannibal Valdimarsson, fram-
bjóðandi Alþýðuflokksins. 21. sept. var kjörinn þing-
maður í Vestur-ísafjarðarsýslu í stað Ásgeirs Ásgeirs-
sonar forseta. Kjörinn var Eirikur Þorsteinsson, fram-
bjóðandi Framsóknarflokksins.
Mörg lög voru afgreidd frá Alþingi á árinu. Sam-
þykkt var, að ísland skyldi gerast aðili að Norður-
landaráðinu. Stálþráðsupptaka á ræðum þingmanna
hófst á haustþinginu.
Útvegur. Hinn 19. marz var gefin út reglugerð um
verndun fiskimiða við ísland, og gekk hún i gildi
15. mai. Samkvæmt henni er öllum fiskiskipum, ís-
lenzkum og erlendum, bönnuð veiði með dragnótum
og botnvörpum innan linu, sem dregin er umhverfis
landið fjórar milur út af yztu nesjum og eyjum fyrir
alla flóa og firði, en erlendum skipum er einnig
bönnuð öll önnur veiði innan þessarar línu. Stjórnir
Bretlands, Frakklands, Hollands og Belgiu mótmæltu
hinn nýju reglugerð. Brezkir útvegsmenn lögðu síðan
löndunarbann á íslenzkan ísfisk i brezkum höfnum,
svo að Bretlandsmarkaðurinn var nær alveg lokaður
síðari hluta ársins. Dálítið af isfiski var selt í
Þýzltalandi, en annars sneru togararnir sér í stað ís-
fiskveiða að veiðum i salt, frystingu og herzlu. Sölu-
ferðir með ísfisk á erlendan markað voru alls 136
á árinu (árið áður 232). Af þeim voru 109 til Bret-
lands og 36 til Þýzkalands.
Siðari hluta sumars stunduðu margir togaranna
veiðar í salt við Grænland, og hafa íslenzk skip aldrei
áður stundað veiðar á Grænlandsmiðum í svo stórum
stil. Saltfiskurinn frá Grænlandsveiðunum var ýmist
(78)