Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1950, Síða 36
spil, þegar hann spilar þvi út, það er spaðadrottn-
ing, og maðurinn er glataður.
Loks er þess að geta, að Pushkin var um skeið
ritstjóri tímarits og kvað hafa skrifað margar ágætar
greinar. Það er sagt, að þótt Pushkin hafi verið slík-
ur ákafamaður sem hann var og hamhleypa og rit
hans ðll hin léttustu og formfegurstu, hafi hann
verið fremur lengi að yrkja. Oft gerði hann miklar
breytingar á handritum sínum og orti upp. Margir
listamenn hafa gert myndir i rit Pushkins eða út
af þeim, eins og þau hafa orðið mörgum tónskáld-
um efni í stór verk.
Af þessu, sem hér er sagt, má nokkuð gera sér
grein fyrir fjölbreytni yrkisefna Pushkins og víð-
tækum áhrifum hans. En starfsævi hans varð ekki
löng. Hann giftist forkunnar fagurri konu, sem
var skrautgjörn, daðursöm og eyðslusöm. Þau lifðu
með í hinu æðsta samkvæmislifi höfuðborgarinnar
og voru við hírðina. Þetta kom Pushkin í fjárhags-
vandræði, sundraði starfskröftum hans og kom hon-
um úr jafnvægi vegna afbrýðisemi sjálfs hans og
óvildar umhverfis hans. Kona hans var umsetin af
landeyðum samkvæmislifsins, og jafnvel keisarinn á
að hafa litið hana hýru auga. Einum þessara manna,
sem snerist um konu hans, þóttist Pushkin þurfa
að svara með einvigisáskorun. Slíkt voru leifar
gamals riddaraskapar, líkt og þegar þeir Gunn-
laugur og Hrafn börðust um ástir Helgu fögru. Þó
að slikt væri nú orðið fyrir utan lög og rétt, þótti
það enn þá kurteisi, að menn dræpu hver annan i
einvígi, þegar mikið lá við. Þessari viðureign lauk
svo, að andstæðingurinn felldi Pushkin og hann
dó af sárum sínum, aðeins 38 ára gamall (8. febrúar
1837).
Niðjar hans ýmsir eru enn við lýði i Rússlandi
og verk hans hafa aldrei lifað frjósamara lífi en nú.
Því hefur hans verið minnzt um allar álfur á 150
(34)