Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1984, Page 65
hvenær hann er í hásuðri í Reykjavík, en þá er hann hæst á lofti, 4° yfir
sjónbaug og kominn upp fyrir 21/2 stundu.
/ sudri a ð í suðri a ð
í Rvík t m O í Rvík t m o
1-febr. 09 29 16 45 -22,3 1. apríl 05 37 16 48 -22,4
1- mars 07 39 16 48 —22,4 1. maí 03 36 16 45 -22,3
Neptúnus er í bogmannsmerki, syðst í sólbrautinni. Hann er því
+8 svo að hann sést aldrei án sjónauka.
Plútó er allt árið í meyjarmerki, nálægt mörkum þess og hjarð-
roannsmerkis. Birtustig hans er nálægt +14 svo að hann sést aðeins í
góðum stjörnusjónaukum. Árið 1979 gekk Plútó inn fyrir braut Nept-
únusar og verður nær sól en Neptúnus fram til 1999.
Teikningin á bls. 64 sýnir hvenær björtustu reikistjörnurnar eru í
hásuðri að sönnum sóltíma árið 1984. Sólin er alltaf í hásuðri kl. 12 að
sönnum sóltíma, hvar sem er á landinu, og ferill hennar fylgir því jaðri
túyndarinnar (hægri eða vinstri jaðrinum, sem í rauninni er sama lín-
an). Myndin gefur til kynna fjarlægðir milli sólar og reikistjarna á him-
'nhvolfinu á vikufresti og hvort reikistjörnurnar eru á morgunhimni
(vinstra megin á myndinni, til hægri við sól) eða á kvöldhimni (hægra
rctegin á myndinni, til vinstri við sól). Á myndinni hafa verið dregnar
iínur til að gefa vísbendingu um, hvenær erfiðast sé að sjá reikistjörn-
Urnar vegna birtu frá sól. Línurnar afmarka svæði (merkt „bjart“ á
ntyndinni) þar sem reikistjörnurnar eru annaðhvort mjög nærri sól
(innan við 45 mínútur í stjörnulengd) eða koma ekki upp í Reykjavík
■neðan dimmt er vegna afstöðu sólbrautar til sjóndeildarhrings.
(63)