Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1984, Page 85
Rafstraumur
1 amper (A) = sá straumur sem þyrfti að vera í óendanlega löngum,
örmjóum beinum vír, til þess að hann verkaði á hvern lengdar-
metra af öðrum straumi jafnmiklum í sams konar vír samsíða
hinum í 1 metra fjarlægð í tómu rúmi með kraftinum 2 • 10~7
njúton, þegar báðir straumarnir eru stöðugir.
Rafspenna
1 volt (V) = spennumunurinn milli tveggja staða í leiðara sem 1
ampers jafnstraumur fer um, þegar orkutapið milli staðanna er 1
vatt. V = W/A.
Rafviðnám
1 óm (ohm, fí) = viðnámið milli tveggja staða í leiðara ef spennumun-
urinn 1 volt milli staðanna skapar strauminn 1 amper þar, þegar
svo háttar til, að engin íspenna myndast í leiðaranum sjálfum.
fí = V/A = W/A2.
Viðnám í 1 m af koparvír, 1 mm2 í þverskurð, við 0°C = 0,016 ft.
Rafhleðsla
1 kúlomb (coulomb, C) = rafhleðslan sem straumurinn 1 amper flytur
framhjá hverjum stað í leiðara á hverri sek. C = A • s.
1 amper-stund (Ah) = 3600 kúlomb.
1 rafeindarhleðsla = 1,60 • 10“19 kúlomb.
Rafrýmd
1 farad (F) = rýmd þéttis sem þarf hleðsluna 1 kúlomb (á hvort skaut)
til að spennumunurinn milli skautanna verði 1 volt. F = C-V.
Spanstuðull
1 henry (H) = spanstuðull lokaðrar rafrásar sem spanar upp íspennuna
1 volt ef straumnum í rásinni er breytt jafnt og þétt um 1 amper á
hverri sekúndu. H = V • s/A.
Segulstyrkur
1 tesla (T) = segulstyrkurinn hornrétt á beinan vír sem straumurinn 1
amper fer um, þegar krafturinn frá segulsviðinu er alls staðar jafn
og nemur 1 njúton á hvern metra vírsins. T = N/(A-m).
1 gauss (G) = 70“4 tesla.
1 gamma (y) = 70“5 gauss = 70“9 tesla.
Styrkur jarðsegulsviðsins á íslandi = um 5 • 10“5 tesla.
Segulflæði
1 veber (weber, Wb) = það segulflæði sem liggur gegnum 1 fermetra
flatar þegar segulstyrkurinn hornrétt á flötinn er alls staðar 1 tesla.
Wb = T • m2 = N • m/A.