Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1984, Page 86
Ljósstyrkur
1 kandela (kerti, cd) = ljósstyrkur ljósgjafa í tiltekna stefnu, þegar
ljósgjafinn sendir frá sér einlitt ljós með sveiflutíðni 540 • 1012 Hz
og orkuflæðið í stefnuna er V683 vött á rúmhornseiningu (steradian).
Ljósstyrkur sólar, séð frá jörðu við góð skilyrði = 2 ■ 1027 cd.
Ljósstyrkur tungls, séð frá jörðu við góð skilyrði = 3 • 1016 cd.
Ljósstyrkur rafmagnsperu af algengri gerð = um 1 cd fyrir hvert vatt.
Ljómi
1 kandela á fermetra (cd/m2) = ljómi ljósgjafa í tiltekna stefnu þegar
ljósstyrkurinn í þá stefnu er 1 kandela á hvern fermetra af ímynd-
uðum, gegnsæjum fleti við ljósgjafann, hornrétt á stefnuna. Ljóm-
inn er mælikvarði á það hve skært yfirborð flatarins sýnist ljóma.
Ljómi sólar, séð frá jörðu við góð skilyrði = um 1,6 • 109 cd/m2.
Ljómi tungls, séð frá jörðu við góð skilyrði = um 4 • 103 cd/m2.
Ljómi heiðskírs himins að degi til = um 4 • 103 cd/m2 (mjög mismun-
andi).
Ljómi bjartra norðurljósa = um 0,1 cd/m2.
Ljósflæði
1 lúmen (lm) = ljósflæðið sem stafar út í hverja rúmhornseiningu
(steradian) frá jafngeislandi ljósgjafa sem hefur ljósstyrkinn 1
kandela í hvaða átt sem er. lm = cd • sr.
Ljósflæðið frá rafmagnsperu af algengri gerð = um 10 lm fyrir hvert
vatt.
Ljósflæðið frá flúrlampa af algengri gerð = um 50 lm fyrir hvert vatt.
Lýsing
1 lúx (lx) = lýsing flatar sem fær á hvern fermetra ljósflæðið 1 lúmen.
Lýsing frá sól við góð skilyrði = um 1 • 105 lúx.
Lýsing frá tungli við góð skilyrði = um 0,2 lúx.
Svigstyrkur
1 díoptría (ö) = svigstyrkur sjónglers sem hefur brennivíddina 1 metra
í efni með brothlutfallið 1. Svigstyrkur sjónglers í lofti er sem næst
l/f ef brennivíddin í lofti er f metrar.
Mögnun
1 desibel (dB) = mögnun sem svarar til þess að orkuflæði margfaldist
um loVl0 = 1,26 (sem jafngildir 26% aukningu flæðisins). Mögn-
un um n desibel svarar til þess að orkuflæðið margfaldist um
loVl0n. Prjú desibel svara nokkurn veginn til tvöföldunar, og tíu
desibel til tíföldunar. Pegar hljóðstyrkur er tilgreindur í desibel er
átt við það hversu mikið þyrfti að magna minnsta heyranlegt hljóð
af tíðninni 1000 Hz til þess að fá sama hljóðstyrk (orkuflæði).